ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum
19:53 ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamálastjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...
Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi
19:29 myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsímaeigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bílstjóra. Þegar bílstjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.
Danir greiða ekki þjóðaratkvæði um ríkisfjármálasamning ESB
19:04 Danska dómsmálaráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðaratkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.
10:58 Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkisáðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.
Franska ríkisstjórnin þurrkar úr orðið „mademoiselle“ að ósk feminista
09:55 Notkun á orðinu „mademoiselle“ eða „fröken“ hefur verið bönnuð á opinberum skjölum í Frakklandi samkvæmt fyrirmælum frá François Fillon, forsætisráðherra Frakklands til allra ráðuneyta landsins. Nú ber að ávarpa allar konur í Frakklandi sem „madame“ á sama hátt og karlmenn eru ávarpaði „monsieur“ án tillits til þess hvort þeir eru kvæntir eða ekki.
Mótmælafundir í Grikklandi í dag
09:25 Nokkrir mótmælafundir hafa verið boðaðir í Grikklandi í dag vegna samkomulags fjármálaráðherra evruríkjanna í gærmorgun. Tvö stærstu verkalýðsfélögin í Grikklandi efna til fundar fyrir framan þinghúsið kl.
Evans-Pritchard: Næst verða ríkisstjórnir að afskrifa lán til Grikklands
09:18 Ambrose Evands-Pritchard, aþjóðlegur viðskiptaritstjóri Daily Telegraph (sem óskaði Íslendingum til hamingju á dögunum með góðan árangur í efnahagsmálum)segir í blaði sínu í dag að nýja neyðarlánið til Grikkja hafi aðeins frestað vandanum í nokkra mánuði.
Grikkland: Ólík viðbrögð leiðtoga stjórnmálaflokka
08:59 Viðbrögð forystumanna í grískum stjórnmálum við samkomulaginu í Brussel í gærmorgun um neyðarlán II til Grikklands eru misjöfn. Antonis Samaras, leiðtogi Nýja lýðræðisflokksins, sagði samkomulagið tryggja greiðslugetu Grikklands og framtíð þess í Evrópu og að það greiddi leiðina að kosningum í apríl.
Rússar hervæðast á norðurslóðum
Í gær Rússar stefna að því að ráða yfir norðruslóðaher árið 2015 segir Alexander Postnikov, hershöfðingi, yfirmaður landhers Rússa, þriðjudaginn 21. febrúar á vefsíðunni rianovosti.ru. Anatolij Serdjukov, varnarmálaráðherra Rússlands, kynnti í júlí hugmynd um tvö norðurslóða-herfylki Rússa. Ekki er...
Murdoch notar 8 orð á Twitter til að lýsa stuðningi við sjálfstæði Skotlands
Í gær Rupert Murdoch, fjölmiðlakóngur, eigandi News Corporation, notaði samskiptasíðuna Twitter þriðjudaginn 21. febrúar til að segja: „Látum Skotland fara og keppa. Allir munu sigra.“ Tístið kom eftir annað sem hann sendi frá sér sunnudaginn 19. febrúar þar sem hann hrósaði Alex Salmond, forsætisráðherra...
Seðlabankastjóri Noregs segir vanda Evrópusambandsins ekki að baki
Í gær Öystein Olsen, seðlabankastjóri Noregs, segir að Evrópusambandið sé ekki á lygnum sjó þótt samþykkt hafi verið 237 milljarða evru neyðaraðstoð til Grikkja. „Jákvæðar fréttir hafa vissulega borist en auðvitað hefur skuldavandinn á evru-svæðinu ekki horfið. Þeir eru að velta skuldunum á milli sín.
DSK hnepptur í varðhald í Lille vegna gruns um aðild að vændi og fjársvikum
Í gær Franska lögreglan hefur hneppt Dominque Strauss-Kahn (62 ára), fyrrverandi forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í allt að 96 stunda varðhald á meðan hann er yfirheyrður vegna ásakana um að hann hafi tekið þátt í kynlífssvalli á kostnað fésýslumanna í París og Washington.
Í gær Evru-ríkin og lánardrottnar Grikklands náðu að morgni þriðjudags 21. febrúar samkomulagi um björgunaraðgerðir í þágu Grikkja með því að leggja þeim til 237 milljarða evra að þessu sinni auk 110 milljarða evra í maí 2010 eða alls um 350 milljarða evra. Markmiðið er að hindra gjaldþrot Grikklands og l...
Spánn: Stjórnarflokkurinn fellur ekki frá breytingum á vinnulöggjöf
Í gær Hin nýja ríkisstjórn PP-flokksins á Spáni ætlar ekki að gefa eftir umbætur á vinnulöggjöf landsins þrátt fyrir víðtæk mótmæli í spænskum borgum um síðustu helgi að því er fram kemur í spænska dagblaðinu El País.
77% Grikkja vilja halda evrunni
Í gær Stuðningur við tvo stærstu stjórnmálaflokkana í Grikklandi hefur aldrei verið lægri skv. nýrri könnun, sem gerð var núna fyrir og um helgina.
Vegabréfaeftirlit á landamærum Skotlands og Englands?
Í gær David Livington, Evópuráðherra í brezku ríkisstjórninni segir að svo kunni að fara að vegabréfaeftirlit yrði sett upp milli sjálfstæðs Skotlands og Englands.
Brussel: Neyðarlán II til Grikklands samþykkt eftir 13 klukkutíma fund
Í gær Fjármálaráðherrar evruríkjanna náðu samkomulagi semma í morgun um neyðarlán II til Grikklands eftir 13 klukkutíma fund.
Gjaldtökuhringur um Kaupmannahöfn kann að sprengja dönsku ríkisstjórnina
Mán Óeiningin innan dönsku ríkisstjórnarinnar kann að verða til þess að ráðherrar Sósíalíska þjóðarflokksins (SF) segi skilið við stóla sína eftir að hafa setið aðeins 141 dag í þeim.
Kínverskur tilboðsgjafi í þrotabú Saab krefst skjótra ákvarðana
Mán Kínverska fyrirtækið Youngman Group hefur lýst áhuga á að kaupa Saab-bílasmiðjunar takist þrotabúinu sem á Saab núna að færa rök fyrir því verði sem krafist er. Volvo er nú þegar í eigu Kínverja og nú segir Pang Qingnian, eigandi Youngman Group, að hann sé tilbúinn til að kaupa Saab enda verði komist að niðurstöðu um eðlilegt verð.
Spánn: Yfir milljón manns mótmæla í spænskum borgum
Mán Verkalýðsfélögin á Spáni segja að meira en ein milljón manna hafi komið út á götur spænskra borga um helgina til þess að mótmæla breytingum nýrrar ríkisstjórnar á Spáni á vinnulöggjöf landsins. Þau fullyrða að um 500 þúsund manns hafi tekið þátt í mótmælum í Madrid og um 450 þúsund í Barcelona, 80 þúsund í Valencia, 35 þúsund í Alicante og 70 þúsund í Zaragosa.
Spiegel: Tilnefning Gauck ósigur fyrir Merkel
Mán Þýzka tímaritið Der Spiegel segir, að Kristilegir demókratar og systurflokkur þeirra í Bæjaralandi hafi verið andvígir tilnefningu Joachim Gauck, sem næsta forseta Þýzkalands en úrslitum hafi ráðið, að Frjálsir demókratar lýstu yfir stuðningi við hann í gær. Þar með hafi Merkel gefið eftir enda hefði málið geta valdið alvarlegum erfiðleikum í stjórnarsamstarfinu.
BBC og Reuters: Neyðarlánið til Grikkja verður afgreitt í dag
Mán Fréttastofur Reuters og BBC eru sammála um að neyðarlánið til Grikkja verði samþykkt á fund fjármálaráðherra evruríkjanna í dag en efasemdir hafa verið um það síðustu daga vegna athugasemda Þjóðverja og fleiri evruríkja. Reuters bendir á að þar með sé efnahagsvandi Grikkja ekki leystur, það taki áratug, en hins vegar sé vandinn kominn í skipulagðari farveg.
Joachim Gauck, lútherskur prestur, næsti forseti Þýskalands
Sun Stjórn- og stjórnarandstaða í Þýskalandi hafa lýst yfir stuðningi við að Joachim Gauck, lútherskur prestur, verði næsti forseti landsins. Meirihluti Þjóðverja hefur lýst stuðningi við það í skoðanakönnun. Gauck lýsir stjórnmálaskoðunum sínum þannig að hann sé annað hvort vinstrisinnaður frjálslyndur íhaldsmaður eða íhaldssamur frjálslyndur vinstrisinnu en utan allra þýskra stjórnmálaflokka.
Utanríkisráðherra Breta: Grikkir eiga enga leið út úr evru-samstarfinu
Sun William Hague, utanríkisráðherra Breta, telur að Grikkir standi frammi fyrir því ákveði þeir að segja skilið við evruna að þeir hafi engin úrræði til að stöðva flutning á evru úr landi.
Danskur hagfræðingur: Skynsamlegasta úrræðið er að skipulagt ríkisgjaldþrot verði í Grikklandi
Sun Í skýrslu sem Steen Jakobsen, aðalhagfræðingur danska Saxo-bankans, hefur gert kemur fram að 95% líkur séu á gjaldþroti Grikklands. Það muni þó ekki leiða til óviðráðanlegra vandræða fyrir fjármálakerfið í Evrópu. Evrópskir bankar, aðrir en grískir, eigi ekki lengur mikið af grískum ríkisskuldabréfum auk þess sem markaðir hafi lagað sig að því að til gjaldþrots komi.
Kínverskir bílaframleiðendur búa um sig á evrópskum mörkuðum með eigin fyrirtækjum þar
Sun Kínverskir bílaframleiðendur hafs búið um sig í Evrópu með því að kaupa vörumerki og verksmiðjur eftir að þeim mistókst að festa rætur í Bandaríkjunum á stærsta bílamarkaði heims. Fyrirtækið Great Wall Motor er nýjasti þátttakandinn á Evrópumarkaði.
Samstöðufundir með Grikkjum víða um Evrópu
Sun Samstöðufundur með Grikkjum voru haldnir víðsvegar um Evrópu í gær að sögn ekathimerini, netútgáfu dagblaðsins Kathimerini. Um 2000 manns komu saman á Trocaderotorgi í París og gengu fylktu liði að gríska sendiráðinu í borginni. Um 400 manns komu saman í rigningu fyrir utan sendiráð Grikklands í London og boðuðu fund að viku liðinni.
Þýzkaland: Joachim Gauck með 46% í skoðanakönnunum
Sun Joachim Gauck nýtur mest fylgis í Þýzkalandi til að verða næsti forseti landsins skv. skoðanakönnun, sem RTL sjónvarpsstöðin skýrði frá í gær. Gauck fékk 46% fylgi í þeirri könnun.
DT: Schauble vill að Grikkir lýsi sig gjaldþrota-ný leyniskýrsla þríeykis veldur svartsýni
Sun Þýzka fjármálaráðuneytið vinnur að því að Grikkland lýsi sig gjaldþrota og taki upp samningaviðræður við lánardrottna um afskriftir meirihluta skulda þess. Þetta kemur fram í Sunday Telegraph í dag.
Lettland: 75% gegn því að rússneska verði opinbert mál
Sun Lettar felldu með yfirgnæfandi meirihluta í þjóðaratkvæðagreiðslu í gær tillögu um að gera rússnesku að öðru opinberu tungumáli Lettlands.
18. feb Skipaður hefur verið samráðshópur í samræmi við aðlögunarkröfur ESB og kemur efnahags- og félagsnefnd ESB (EESC) fram fyrir hönd ESB. Hópurinn skal skipaður fulltrúum frjálsra félagsamtaka atvinnulífs og stéttarfélaga ásamt fulltrúum sveitarfélaga. Liina Carr, starfsmaður alþýðusamtaka Eistlands, er...
Þýzkaland: Leit að nýjum forseta stendur yfir
18. feb Nú stendur yfir leit að nýjum forseta Þýzkalands. Der Spiegel segir að eftirfarandi nöfn séu helzt til umræðu. Norbert Lammert, forseti þingsins. Hann mundi að sögn tímaritsins fá fleiri atkvæði frá stjórnarandstöðunni en stjórnarflokkunum vegna þess, að hann þykir hafa gengið of langt til móts við sjónarmið stjórnarandstöðunnar í þinginu. Klaus Töpfer, sem er 73 ára gamall.
Írland: Deilur um skuldavanda heimila-Nær 71 þúsund heimili í meira en 90 daga vanskilum
18. feb Stjórnvöld á Írlandi liggja undir þungri gagnrýni fyrir að taka skuldavanda heimila á Írlandi ekki nægilega föstum tökum að því er fram kemur í Irish Times í dag. Nýjar tölur sýni að eitt af hverjum sjö heimilum geti ekki staðið undir mánaðarlegum afborgunum af veðlánum. Í lok desember voru 70911 heimili í meira en 90 daga vanskilum.
AGS leggur minna fram til Grikklands en áður
18. feb Alþjóða gjaldeyrissjóðuinn mun leggja fram mun minna fé í neyðarlán II til Grikklands en hann gerði, þegar hið fyrra neyðarlán var veitt í maí 2010. Nú er gert ráð fyrir að hann leggi fram 13 milljarða evra af 130 milljörðum sem þýðir að ríkisstjórnir annarra evruríkja verða að leggja fram nær 120 m...
Sarkozy og Cameron endurnýja vináttu sína
18. feb Nicholas Sarkozy, forseti Frakklands sagði á sameiginlegum blaðamannafundi hans og David Cameron í París í gær, að andstaða Cameron við ríkisfjármálasamning ESB væri skiljanleg út frá sjónarhorni Breta.
Einar K. Guðfinnsson, alþingismaður, skrifar mjög athyglisverða grein í Morgunblaðið í dag, þar sem hann færir sterk rök að því að mikil mistök hafi verið gerð við kaup nýju bankanna á eignum gömlu bankanna og að þær hafi verið keyptar of háu verði án þess að nokkrir fyrirvarar hafi verið gerðir. Þi...
Stjórnlagaráð lauk störfum og skilaði alþingi tillögum að nýrri stjórnarskrá 29. júlí 2011. Þingnefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, var falið að ræða tillögur stjórnlagaráðs. Hún hefur kallað fyrir sig fjölda sérfræðinga og hefur enginn þeirra talið fært að afgreiða tillögunnar án viðamikilla ...