Miðvikudagurinn 11. desember 2019

Þýzku bankarnir koma til aðstoðar Grikkjum

Markmiðið að draga úr andstöðu almennings í Þýzkalandi


1. maí 2010 klukkan 09:06

Þýzku bankarnir eiga nú í viðræðum sín í milli um þátttöku í aðgerðum þýzkra stjórnvalda til aðstoðar Grikkjum. Það er eins og fyrr í áþekkum tilvikum, Josef Ackermann, aðalbankastjóri Deutsche Bank, sem hefur forystu í þessum viðræðum. Þær hófust eftir hvatningu frá Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands.

Þýzka ríkisstjórnin á í miklum erfiðleikum með að sætta almenning í landinu við að Þjóðverjar leggi fram 8,4 milljarða evra til þess að bjarga Grikkjum frá þjóðargjaldþroti. Hugsunin á bak við aðkomu þýzku bankanna er sú, að almenningur geti betur sætt sig við það framlag ef bankarnir í Þýzkalandi verði líka að leggja fram fé og er talað um einn milljarð evra í því sambandi.

Jafnaðarmenn í Þýzkalandi, sem nú eru í stjórnarandstöðu hafa hvatt til þess að sérstakur skattur eða gjald verði lagt á banka um alla Evrópu. Það er svipuð hugmynd og fram hefur komið um slíka gjaldtöku af viðskiptum banka á heimsvísu. Ef jafnaðarmenn fallast ekki á aðstoðina við Grikki geta umræður um hana átt eftir að standa vikum saman í þýzka þinginu.

Þá má ekki gleyma því að bankar í öllum Evrópulöndum eiga mikilla hagsmuna að gæta í Grikklandi. Verði landið gjaldþrota tapa bankarnir miklu fé, sem þeir hafa lánað til Grikkja.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS