Seðlabanki Evrópu tók við fyrirmælum frá stjórnmálamönnum
Fjármálakreppu innan Evrópusambandsins hefur verið afstýrt en pólitísk átök eru framundan um hvert ESB skuli stefna. Seðlabanki Evrópu hefur misst þá sterku stöðu, sem hann hefur haft og tekið við fyrirmælum frá stjórnmálamönnum um að kaupa ríkisskuldabréf evruríkjanna við Miðjarðarhaf. Sarkozy, Frakklandsforseti hefur unnið sigur í baráttu sinni fyrir sameiginlegri efnahagsstefnu ESB-ríkja. Angela Merkel, kanslari Þýzkalands hefur beðið ósigur vegna þess, að Maastricht-skilyrðin, sem sett voru við upptöku evrunnar eru fokin út í veður og vind. Kanslarinn stendur frammi fyrir vaxandi pólitískum erfiðleikum og minnkandi trausti þýzkra kjósenda.
Þetta er niðurstaða brezka dagblaðsins The Times í London, sólarhring eftir að hinar miklu björgunaraðgerðir ESB og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins vegna evrunnar og Miðjarðarhafsríkjanna voru kynntar.
Jean-Claude Trichet, aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu heldur því fram að staða bankans sé óbreytt en enginn hlustar á hann. Tveir Þjóðverjar sem sæti eiga í stjórn bankans greiddu atkvæði gegn þeirri ákvörðun að kaupa skuldabréf Miðjarðarhafsríkjanna. Axel Weber, bankastjóri Bundesbank, þýzka seðlabankans, segir að þessi ákvörðun hafi verið mistök en Weber er talinn líklegur arftaki Trichet.
Marek Belka, yfirmaður Alþjóða gjaldeyrissjóðsins í Evrópu líkir aðgerðum ESB og sjóðsins við deyfilyf, sem sjúklingi hafi verið gefið. Aðgerðirnar dragi úr þjáningum en lækni ekki meinsemdina.
Gagnrýnendur aðgerðanna segja, að þær dragi úr hvatningu evruríkjanna um að halda fast við agaða stjórn ríkisfjármála. Í raun séu Þýzkaland og önnur betur stödd ESB-ríki að taka ábyrgð á skuldum Grikklands, Portúgals og annarra ver staddra aðildarríkja ESB og evrusvæðisins. Nú geti önnur ríki búizt við að þeim verði bjargað ef eitthvað bjátar á.
New York Times sagði í morgun, að Obama, Bandaríkjaforseti hefði verið í stöðugu sambandi við Merkel og Sarkozy um helgina og hvatt þau til aðgerða.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.