Norðmenn fegnir að vera ekki aðilar að evrunni
Vaxandi andstaða er við aðild að Evrópusambandinu í Noregi. Í nýrri skoðanakönnun, sem Norstat gerði fyrir NRK, norska útvarpið og sjónvarpið kváðust 55% vera andvígir aðild en einungis 32,2% sögðust mundu greiða atkvæði með aðild, ef atkvæði yrðu greidd um hana nú. Af þeim, sem spurðir voru reyndust 12,7% óákveðnir.
Heming Olaussen, forystumaður NEI-hreyfingarinnar í Noregi segir í viðtali við NRK, að fleiri og fleiri hafi efasemdir um aðild Noregs að ESB. Hann telur rökrétt, að Norðmenn séu fegnir því að vera ekki á evrusvæðinu en segir almenning hafa samúð með því fólki, sem misst hafi vinnuna við núverandi aðstæður.
Paal Frisvold leiðtogi Evrópuhreyfingarinnar í Noregi segist ekki hissa á þessum niðurstöðum í ljósi efnahagskreppunnar, sem yfir standi.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.