Bretar geta ekki vænst þess að fá aðstoð frá ESB lendi þeir að nýju í fjármálakrísu, eftir að þeir neituðu að veita ábyrgð vegna evru neyðarsjóðs, segir fyrrverandi Evrópumálaráðherra Frakka, Jean-Pierre Jouyet.
Í viðtali við frönsku útvarpsstöðina Europe 1 sagði Jean-Pierre Jouyet, að Bretar yrðu örugglega fyrir nýrri árás spákaupmanna vegna pólitískra erfiðleika sinna. Þeir yrðu þá að treysta á guð og lukkuna. Úr því að þeir hefðu ekki viljað sýna samstöðu með evru-löndunum, yrðu menn bara að bíða og sjá, hvað verða vildi.
Að sögn The Daily Telegraph í London var Jouyet greinilega misboðið vegna þess að Alistair Darling, þáv. fjármálaráðherra Breta, neitaði að ganga í ábyrgð vegna hins sérstaka 440 milljarða evru neyðarsjóðs, sem stofnaður hefur verið til að bjarga evrunni.
Jouyet sagði, að augljós klofningur væri innan ESB, ekki væri lengur unnt að ræða um tvískipt samstarf heldur þrískipt, þegar litið væri til evrunnar. Í fyrsta væru evru-ríkin sjálf, þá ESB-ríki, sem hefðu skilning á evrunni, og loks Bretar.
Eins og áður hefur komið fram hér á Evrópuvaktinni taldi Darling sig og Breta bundna af meirihluta samþykkt á vettvangi ESB um að veita ábyrgð vegna 60 milljarða evru lántöku framkvæmdastjórnar ESB í þágu evrunnar. 440 milljarða evru-sjóðurinn er undir handarjaðri Seðlabanka Evrópu.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.