Laugardagurinn 4. febrúar 2012

Evran í andarslitrum


6. júní 2010 klukkan 10:46

Merki Seðlabanka Evrópu

Tólf af tuttugu og fimm sérfræðingum í City, fjármálahverfi Lundúna, sem Sunday Telegraph leitaði til telja, að evran sé í andarslitrum og verði ekki til eftir fimm ár. Átta þeirra töldu hins vegar að hún mundi lifa og fimm voru óákveðnir.

Sérfræðingarnir telja, að hagvöxtur í Bretlandi verði meira en einu prósentustigi minni en gert hafði verið ráð fyrir í marz sl. Og að brezka ríkisstjórnin muni taka 10 milljörðum sterlingspunda minna að láni á næsta ári en áður hafði verið gert ráð fyrir. Helmingur sérfræðinganna telur, að Englandsbanki muni halda óbreyttum vöxtum til 2012 en hinn helmingurinn telur bankann muni hækka vexti síðar á þessu ári.

Blaðið segir hins vegar að mat sérfræðinganna á evrunni veki mesta athygli. Fyrir ári hefðu fáir innan City haldið slíku fram. Sumir þeirra, sem spá evrunni framtíð telja að það gerist einungis með því að einhver núverandi aðildarríkja yfirgefi evrusvæðið

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Björn Bjarnason Pistill

Bölvun eða blessun íslensku krónunnar rædd á vegum ASÍ

Eftir fund Alþýðu­sambands Íslands (ASÍ) að morgni þriðjudags 10. janúar um krónuna, hvort hún sé bölvun eða blessun, hefur skýrst að Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, lítur á baráttu fyrir upptöku evru sem leið til að draga athygli frá ábyrgð verkalýðsforystunnar á hag­stjórn hér á landi undanfarin ár...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Tugir þúsunda mótmæla Pútín í Moskvu - vilja nýjar þingkosningar

Tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælagöngu gegn Vladimir Pútín í Moskvu laugardaginn 4. febrúar þrátt fyrir 19 stiga frost. Þetta voru þriðju stórmótnælin í borginni síðan 4. desember þegar kosið var til þings án þess að gætt væri kosningalaga. Þeir sem að göngunni stóðu eru úr samtökum „Heiðarle...

Bandaríkjamenn fækka hermönnum í Þýskalandi - miðstöð eldflaugavarna í Ramstein - áhersla lögð á snjallvarnir NATO

Bandaríkjamenn vinna að því að flytja bardagasveitir sínar frá Evópu en miðstöð eldflaugavarna NATO verður í Þýskalandi.

Jón Bjarnason lýsir formenn stjórnar­flokkanna ósannindamenn - kynna ESB-viðræðurnar á fölskum forsendum

Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra, lýsir Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon, leiðtoga ríkis­stjórnar­innar, ósannindamenn í grein í Morgunblaðinu laugardaginn 4. febrúar. Þau héldu því fram í sameiginlegri blaðagrein 1. febrúar 2012 að ríkis­stjórnin léti nú ...

Manndrápskuldi herjar á þjóðir meginlands Evrópu

Manndrápskuldi ríkir nú víða í Evrópu og á meginlandi álfunnar hefur kuldinn ekki verið meiri í 25 ár. Í Úkraínu og Póllandi hefur frostið farið í -30C gráður.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS