Angela Merkel, kanslari Þýzkalands, sagði í Berlín í gær að loknum fundi með Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands að Spánverjar gætu hvenær sem er sótt um fjárhagslegan stuðning úr björgunarsjóði ESB/ASG. Nokkur þýzk dagblöð hafa haldið því fram, að Evrópusambandið hafi að undanförnu unnið að því að tryggja fjármuni til Spánar í samræmi við starfsreglur björgunarsjóðsins. Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar í Brussel hefur neitað þessu.
Spænskir bankar hafa lent í vandræðum með að tryggja sér nægilegt lausafé og hefur Seðlabanki Evrópu neyðst til að hlaupa undir bagga.
Berlingske Tidende í Kaupmannahöfn segir í morgun, að alþjóðlegir fjármálamarkaðir hafi lokast fyrir Spánverja. Blaðið segir að þetta hafi komið fram í gær, mánudag, í ræðu spænska fjármálaráðherrans, Carlos Ocana og stjórnarformanns eins spænsku bankanna, Francisco Gonzales. Við sama tækifæri vísaði spænski ráðherrann hins vegar á bug ofangreindum fréttum þýzkra blaða.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.