Mánudagurinn 1. mars 2021

AXA: aðgerðir ESB/AGS í Grikklandi duga ekki


15. júní 2010 klukkan 09:40

Talsmenn franska fjármálafyrirtækisins AXA halda því fram að sögn Daily Telegraph í London í morgun, að verulegar líkur séu á að evrusvæðið muni annað hvort skiptast í tvennt eða leysast upp. Sömu aðilar segja, að björgunaraðgerðir ESB/AGS við Grikkland og önnur Miðjarðarhafsríki gangi ekki upp vegna þess að vandi ríkjanna hafi ekki verið rétt skilgreindur. Þessar aðgerðir muni í mesta lagi duga í næstu 18 mánuði. Eftir það séu líkur á að Grikkland geti ekki staðið við skuldbindingar sínar, sem muni hafa keðjuverkandi áhrif um alla Suður-Evrópu.

AXA heldur því fram, að að aðgerðirnar mistakist vegna þess, að með þeim sé litið svo á, að Grikkland eigi einungis við að stríða tímabundinn lausafjárvanda. Aðgerðir ESB/AGS leiði til þess að opinberar skuldir Grikkja muni aukast úr 120% af vergri landsframleiðslu í 150% á árinu 2014.

Nokkrir fyrrverandi starfsmenn AGS hafa haldið því fram við Daily Telepraph, að aðgerðir ESB/AGS muni mistakast vegna þess, að í þeim sé hvorki að finna gengisfellingu né skuldaslökun af nokkru tagi. AGS hafi sett fram hugmyndir um skuldaaðlögun fyrir Grikkland, sem ESB hafi vísað á bug.

Talsmenn AXA segja að myntbandalag ríkja Bandaríkjanna hafi gengið upp vegna þess að alríkisstjórnin í Washington hafi ótvírætt lagalegt vald yfir fylkjunum 50.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS