Alexander Stubb, utanríkisráðherra Finnlands, býður öllum aðildarríkjum Norðurskautsráðsins til fundar æðstu manna ríkja ráðsins í Rovaniemi. Fundinum er ætlað að fjalla um strategískar og hernaðarlegar breytingar vegna loftslagsbreytinga.
Stubb hreyfði hugmyndinni um leiðtogafund norðurskautsríkjanna á NATO-ráðstefnu í finnska þinginu 17. júní.
„Ég legg til, að efnt verði til ráðstefnu um norðurskautið með þátttöku æðstu manna. Þessi leiðtogafundur yrði hinn fyrsti sinnar tegundar í sögunni. Þar kæmu allir helstu hagsmunaaðilar saman til að ræða svæðisbundin viðfangsefni, sem skipta alla á svæðinu mjög miklu og hafa hnattræna skírskotun. Á leiðtogafundinum yrði mörkuð ný stefna í samvinnu um norðurskautið og fundurinn markaði tímamót í þróun Norðurskautsráðsins,“ sagði Stubb á ráðstefnunni í Helsinki.
Ríkin átta í Norðurskautsráðinu eru: Bandaríkin, Danmörk (Grænland), Finnland, Ísland, Kanada, Noregur, Rússland og Svíþjóð.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik
Þrír fyrrverandi framkvæmdastjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.
Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta
Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...
ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands
Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnumarkað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...