Laugardagurinn 4. febrúar 2012

60% andvígir aðild að ESB-26% hlynntir


1. júlí 2010 klukkan 19:55

Nýr þjóðarpúls Capacent Gallup sýnir að 60% Íslendinga eru andvígir aðild að ESB en einungis 26% eru hlynntir aðild. Fréttastofa RÚV skýrði frá þessu í kvöld. Í könnuninni kemur fram, að 76% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru andvígir aðild en 14% stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins eru hlynntir og 13% stuðningsmanna Framsóknarflokksins eru hlynntir aðild. Í tilviki Vinstri grænna eru 70% andvígir en 19% hlynntir.

Þegar horft er til Samfylkingar kemur í ljós, að 68% stuðningsmanna eru hlynntir aðild að ESB en 13% Samfylkingarmanna eru andvígir.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Margréti Celu Pistill

Norðurslóðir: Hernaðarkapphlaup um náttúruauðlindir, hnattvæðing, eða er kannski ekkert að gerast?

Evrópu­vaktin fékk leyfi höfundar til að birta efni fyrirlestrar sem fluttur var á fundi á vegum Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál í ráð­stefnusal Þjóðminjasafns 26. janúar 2012 um *Norðurslóðir og borgaralegt öryggi* * • Hið mikla kapphlaup um Norðurheimsskautið! * • Þ...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Tugir þúsunda mótmæla Pútín í Moskvu - vilja nýjar þingkosningar

Tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælagöngu gegn Vladimir Pútín í Moskvu laugardaginn 4. febrúar þrátt fyrir 19 stiga frost. Þetta voru þriðju stórmótnælin í borginni síðan 4. desember þegar kosið var til þings án þess að gætt væri kosningalaga. Þeir sem að göngunni stóðu eru úr samtökum „Heiðarle...

Bandaríkjamenn fækka hermönnum í Þýskalandi - miðstöð eldflaugavarna í Ramstein - áhersla lögð á snjallvarnir NATO

Bandaríkjamenn vinna að því að flytja bardagasveitir sínar frá Evópu en miðstöð eldflaugavarna NATO verður í Þýskalandi.

Jón Bjarnason lýsir formenn stjórnar­flokkanna ósannindamenn - kynna ESB-viðræðurnar á fölskum forsendum

Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra, lýsir Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon, leiðtoga ríkis­stjórnar­innar, ósannindamenn í grein í Morgunblaðinu laugardaginn 4. febrúar. Þau héldu því fram í sameiginlegri blaðagrein 1. febrúar 2012 að ríkis­stjórnin léti nú ...

Manndrápskuldi herjar á þjóðir meginlands Evrópu

Manndrápskuldi ríkir nú víða í Evrópu og á meginlandi álfunnar hefur kuldinn ekki verið meiri í 25 ár. Í Úkraínu og Póllandi hefur frostið farið í -30C gráður.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS