Günther Öttinger, orkumálatjóri ESB, hvatti ESB-ríki 14. júlí til að setja tímabundið bann á olíuboranir á djúpsævi. Fyrr um daginn hafði Öttinger hitt 22 forystumenn olíuiðnaðar í Evrópu á fundi í Brussel, þar sem ræddar voru nýjar öryggisreglur í ljósi olíuslyssins hjá BP í Mexíkóflóa. Auk Öttingers sátu umhverfis-, sjávarútvegs- og almannavarnastjórar ESB fundinn.
Þrátt fyrir að framkvæmdastjórn ESB hvetji til slíks boranabanns, hefur hún ekki vald til að framfylgja slíku banni. Valdið til þess er í höndum ríkisstjórna einstakra landa.
Norðmenn, sem standa utan við ESB, hafa farið að óskum orkumálastjórans, en aðrar þjóðir hafa ekki gert það. Vakti Öttinger máls á því, þegar hann hrósaði Norðmönnum en harmaði að Bretar hefðu ekki hætt við boranir. Sagðist hann ætla að taka málið upp við yfirvöld í einstökum ríkjum. Þá sagði hann, að hugað yrði að nýrri löggjöf til að geta bundið hendur þeirra, sem eiga eða reka olíuborpalla.
Unnið er að um 115 djúpsjávar-borununum undan ströndum ESB-ríkja, einkum í Norðursjó og Norður-Atlantshafi. 24 slík verkefni eru á undirbúningsstigi.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.