Meginmarkmiðið með útflutningsbanninu, sem Rússar hafa sett á korn er að koma í veg fyrir of mikla hækkun á korni heima fyrir segir BBC í dag. Rússar borða brauð með nánast öllum mat og fordæmi eru fyrir því að mikil verðhækkun á brauði geti leitt til þjóðfélagslegs óróa og jafnvel óeirða. Nú bendir allt til að kornframleiðsla á þessu ári í Rússlandi standi ekki undir neyzlunni heima fyrir. Á síðasta ári framleiddu Rússar 97 milljónir tonna af korni. Á þessu ári er talið líklegt að framleiðslan minnki niður í 60 milljónir tonna vegna eldanna en neyzlan heima fyrir er um 80 milljónir tonna á ári.
Á síðasta ári fluttu Rússar út um fjórðung framleiðslu sinnar aðallega til Egyptalands, Tyrklands, Írans, Sýrlands og Líbýu. Efnahagslegar afleiðingar minnkandi kornframleiðslu og skógareldanna í Rússalandi verða miklar og er talið að áfallið muni nema um 15 milljörðum dollara og seinki efnahagsbata í Rússlandi eftir fjármálakreppuna.
Þótt heimsmarkaðsverð á korni fari hækkandi vegna hamfaranna í Rússlandi er talið að það lækki fljótlega á ný vegna mikillar uppskeru í Bandaríkjunum.
Á euobserver kemur fram, að Rússar, Bandaríkjamenn og Evrópusambandið hyggist koma á stofn alþjóðlegum vinnuhópi til þess að draga lærdóm af reynslu Rússa við að fást við skógareldana að þessu inni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.