Sunnudagurinn 26. maí 2013

ESB-viðskiptabann á selafurðir leiðir til lögbanns ESB-dómstólsins


22. ágúst 2010 klukkan 19:51

Almenni ESB-dómstóllinn féllst fimmtudaginn 19. ágúst á ósk Inuit-samtaka um að setja lögbann á ákvörðun Evrópusambandsins um að banna viðskipti með selaafurðir innan ESB. Þrátt fyrir lögbannið tilkynnti framkvæmdastjórn ESB föstudaginn 20. ágúst, að viðskiptabannið væri í gildi, það næði þó ekki til þeirra, sem óskað hefðu eftir lögbanninu. Samtök Inuíta í Kanada og Grænlandi auk selveiðimanna í Noregi og annarra hagsmunaaðila stóðu að baki lögbannskröfunni.

Jan Bouckaert, lögmaður Inúíta sagði, að hann tryði því ekki, að lögbannsúrskurðurinn kæmi aðeins beiðendunum til góða, á meðan málið yrði til efnislegrar meðferðar hjá dómstólnum. Dómarar munu leggja mat á, hvort viðskiptabannið standist ESB-stofnskrár.

ESB-þingið kynnti á síðasta ári, að viðskiptabannið yrði sett. Kanadamenn gagnrýndu það harkalega og snerust meðal annars gegn áheyrnaraðild ESB að Norðurskautsráðinu vegna bannsins. Kanadastjórn hefur skotið banni ESB til Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar og sakað ESB um fráleita mismunun gagnvart kanadískum selveiðimönnum, sem fylgi öllum alþjóðareglum við veiðar sínar.

Viðskiptabann ESB undanskilur afurðir frá þeim veiðimönnum, sem stunda hefðbundar veiðar innfæddra, Inúíta. Samtök þeira telja hagsmunum félagsmanna sinna engu að síður stefnt í voða, þar sem bannið þrengi markað fyrir afurðir þeirra.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Styrmi Gunnarsson Pistill

Olíuvinnsla við Ísland (II): Þjónusta við orkuþríhyrning norður af Íslandi opnar ný tækifæri

Í BA-ritgerð í hagfræði, sem Hildur Sturlu­dóttir skrifaði við Háskóla Íslands og birt var í febrúar á þessu ári er ferlinu við hugsanlega olíuvinnslu lýst með eftirfarandi hætti: "Fyrsta stigið kallast frumathugunarstig.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kínverjar reyna að blekkja Evrópu­menn með gervi-aspiríni

Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.

Grikkland: Flótti frá PASOK

Fyrrverandi menntamála­ráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "

Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu

Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráð­stefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópu­sambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.

Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns

Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, for­stjóri AGS og fyrrum fjármála­ráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútu­greiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS