„Aðspurður segist hann [Össur Skarphéðinsson] þó frekar hafa reiknað með að samningum ljúki á kjörtímabili núverandi ríkisstjórnar,“ segir á vefsíðunni visir.is 22. ágúst. Kjörtímabilinu lýkur vorið 2013. Össur er ekki viss um, að takist að ljúka ESB-viðræðunum fyrir þann tíma. Yfirlýsing Össurar stangast á við bjartsýni hans haustið 2009 um „hraðferð“ Íslands inn í ESB.
Fyrir um það bil ári lét Össur að því liggja, að Íslendingar sigldu hraðbyri inn í ESB. Fyrr í sumar hélt hann til Króatíu í því skyni að sammælast við ráðamenn þar um, að íslensk stjórnvöld hefðu samflot með þeim. Króatar hafa stefnt að ESB-aðild á árinu 2012.

Samkvæmt visir.is leggur Össur áherslu á, að verði aðild samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu, gangi Íslendingar einnig í myntbandalagið og taki upp evruna. Af þessum orðum utanríkisráðherra mætti ætla, að Íslendingum stæði til boða, að ganga í ESB, án þess að taka upp evru. Svo er ekki. Ný aðildarríki ESB verða að taka upp evru, þegar ESB og evru-ríkin telja þau hæf til þess.
Össur segist hafa rætt það á ríkjaráðstefnu Íslands og Evrópusambandsins í júlí, að Evrópusambandið kæmi að því áður en mögulegt væri að taka evruna upp að styðja við krónuna.
Á það hefur verið bent, að án aðildar Íslands að ESB, sé unnt að gera gjaldmiðilssamning við hlið EES-samnings Íslands og ESB. EES-samningurinn nái hvorki til gjaldmiðils- né efnahagsmála, en hins vegar hafi ESB heimild í stofnsáttmála sínum til slíkra samninga við þriðju ríki. ESB hafi gert samninga um þetta við ýmis smáríki í Evrópu, Vatíkanið, Mónakó, San Marínó og fleiri.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...