Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Staða ESB-andstæðinga sterkari í ríkis­stjórn með tilkomu Ögmundar


1. september 2010 klukkan 07:32

Fari sem horfir um breytingar á ríkisstjórn er ljóst, að staða eindreginna andstæðinga ESB-aðildar innan Vinstri grænna styrkist mjög. Nú má telja víst, miðað við fréttir Morgunblaðsins og Fréttablaðsins í morgun og ljósvakamiðla í gærkvöldi, að Ögmundur Jónasson taki sæti í ríkisstjórn á ný og Álfheiður Ingadóttir hverfi úr ráðherraembætti. Álfheiður hefur verið í hópi ákveðnustu stuðningsmanna Steingríms J. Sigfússonar innan VG og í raun hafa því fjórir af fimm ráðherrum VG fylgt þeirri afstöðu fjármálaráðherra að sigla milli skers og báru vegna aðildarumsóknar Íslands. Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur því verið einn á bát. Ef og þegar Ögmundur Jónason setzt við ríkisstjórnarborðið á ný verður staða þeirra tveggja sterkari.

Ögmundur Jónasson hefur að undanförnu sýnt í orði og verki, að andstaða hans við aðildarumsóknina hefur harðnað enda er hann bersýnilega sammála Jóni Bjarnasyni um, að um aðlögunarferli sé að ræða en ekki samningaviðræður.

Augljóst er að Samfylkingin fagnar því ekki að staða ESB-andstæðinga innan VG styrkist innan ríkisstjórnarinnar. Hins vegar er það vafalaust mat forystumanna Samfylkingar að taki Ögmundur Jónasson sæti á ný í ríkisstjórn skapist meiri friður innan þess arms þingflokks Vinstri grænna, sem fylgt hefur Ögmundi að málum.

Þá má telja líklegt að aðkoma Ögmundur Jónassonar að ríkisstjórn efli stöðu þeirra afla innan stjórnarflokkanna og þá sérstaklega VG, sem eru ekki tilbúin til að halda áfram viðræðum um Icesave við Breta og Hollendinga á óbreyttum forsendum.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim

Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.

Grikkland: Leiðtogar stjórnar­flokka funda síðdegis um ERT

Leiðtogar stjórnar­flokkanna þriggja á Grikklandi koma saman til fundar síðdegis í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um örlög og framtíð gríska ríkisútvarpsins-sjónvarps. Samkvæmt úrskurði stjórnlagadómstóls Grikklands sl. mánudag hafði ríkis­stjórnin leyfi til að loka ERT en ekki að slökkva á útsendingu. Stjórnar­flokkarnir hver um sig túlka þessa niðurstöðu eins og þeim hentar.

NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001

Þjóðaröryggis­stofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislög­regla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...

Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða

Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evru­svæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS