Laugardagurinn 4. febrúar 2012

Þögn um Icesave og ESB aðild í 20 mála verkefnaskrá ríkis­stjórnar­innar


2. september 2010 klukkan 22:02

Samtímis því, sem skipt var um ráðherra í ríkisstjórninni sendu forystumenn stjórnarflokkanna frá sér yfirlýsingu, þar sem segir meðal annars:

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs byggir störf sín og stefnu á skýrum markmiðum samstarfsyfirlýsingar flokkanna frá maí 2009, fyrirliggjandi efnahagsáætlun og samþykktum meirihlutans á Alþingi. Meðal þeirra stefnumála ríkisstjórnarinnar sem formenn stjórnarflokkanna eru sammála um að leggja áherslu á og hrinda í framkvæmd á næstu mánuðum eru eftirfarandi 20 mál.

Þegar þessi 20 mál eru skoðuð vekur athygli, að þar er hvorki minnst á Icesave né ESB-aðildina. Engin skýring hefur verið gefin á þögninni um þessi tvö mál, sem bæði hljóta að vera stórmál á verkefnalista ríkisstjórnarinnar, ef hún ætlar að framfylgja stefnu sinni um ESB-aðild og samninga um Icesave. Ber að skýra þögnina sem stefnubreytingu ríkisstjórnarinnar?

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Margréti Celu Pistill

Norðurslóðir: Hernaðarkapphlaup um náttúruauðlindir, hnattvæðing, eða er kannski ekkert að gerast?

Evrópu­vaktin fékk leyfi höfundar til að birta efni fyrirlestrar sem fluttur var á fundi á vegum Varðbergs, samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál í ráð­stefnusal Þjóðminjasafns 26. janúar 2012 um *Norðurslóðir og borgaralegt öryggi* * • Hið mikla kapphlaup um Norðurheimsskautið! * • Þ...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Tugir þúsunda mótmæla Pútín í Moskvu - vilja nýjar þingkosningar

Tugir þúsunda manna tóku þátt í mótmælagöngu gegn Vladimir Pútín í Moskvu laugardaginn 4. febrúar þrátt fyrir 19 stiga frost. Þetta voru þriðju stórmótnælin í borginni síðan 4. desember þegar kosið var til þings án þess að gætt væri kosningalaga. Þeir sem að göngunni stóðu eru úr samtökum „Heiðarle...

Bandaríkjamenn fækka hermönnum í Þýskalandi - miðstöð eldflaugavarna í Ramstein - áhersla lögð á snjallvarnir NATO

Bandaríkjamenn vinna að því að flytja bardagasveitir sínar frá Evópu en miðstöð eldflaugavarna NATO verður í Þýskalandi.

Jón Bjarnason lýsir formenn stjórnar­flokkanna ósannindamenn - kynna ESB-viðræðurnar á fölskum forsendum

Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávar­útvegs- og landbúnaðar­ráðherra, lýsir Jóhönnu Sigurðardóttur og Steingrím J. Sigfússon, leiðtoga ríkis­stjórnar­innar, ósannindamenn í grein í Morgunblaðinu laugardaginn 4. febrúar. Þau héldu því fram í sameiginlegri blaðagrein 1. febrúar 2012 að ríkis­stjórnin léti nú ...

Manndrápskuldi herjar á þjóðir meginlands Evrópu

Manndrápskuldi ríkir nú víða í Evrópu og á meginlandi álfunnar hefur kuldinn ekki verið meiri í 25 ár. Í Úkraínu og Póllandi hefur frostið farið í -30C gráður.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS