Miðvikudagurinn 22. maí 2013

Nýjar áhyggjur af stöðu evrunnar og evru­svæðisins


8. september 2010 klukkan 08:19

Nýjar áhyggjur hafa vaknað um stöðu evrunnar og fjárhagsstöðu evrusvæðisins samkvæmt fréttum euobserver í morgun. Í gær lækkaði gengi evrunnar og ávöxtunarkrafa á skuldabréfum Grikklands, Írlands og Portúgals hækkaði mjög. Í tilviki Portúgals er ástæðan talin sú, að portúgalskir bankar hafa orðið að leita eftir miklu fjármagni hjá Seðlabanka Evrópu vegna þess, að þeir eiga í erfiðleikum með að fá það annars staðar.

Írar standa frammi fyrir miklum vanda vegna Anglo Irish Bank, eins og fram hefur komið hér á Evrópuvaktinni. Í síðustu viku kvaðst bankinn þurfa á að halda 25 milljörðum evra í nýju fé, sem nemur 19% af landsframleiðslu Írlands. Standard & Poor´s heldur því fram, að nær væri að tala um 35 milljarða evra.

Önnur ástæða fyrir versnandi stöðu á evrusvæðinu er talin vera frétt í Wall Street Journal þess efnis, að álagspróf evrópsku bankanna í júní hafi ekki gefið rétta mynd af stöðu þeirra.

Samkvæmt frétt í Irish Times í morgun þurfa Írar nú að borga 6,02% vexti af skuldabréfum sínum og munurinn á ávöxtunarkröfu á írskum skuldabréf og þýzkum er nú 380 punktar

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab handteknir - grunaðir um skattsvik

Þrír fyrrverandi framkvæmda­stjórar Saab-bílasmiðjunnar í Svíþjóð hafa verið handteknir í Svíþjóð vegna gruns um bókhaldsbrot. Olof Sahlgren saksóknari telur að þremenningarnir hafi gerst sekir um alvarlegar tilraunir til að skjóta sér undan skattayfirvöldum.

Evróvisjón: Utanríkis­ráðherrar Rússlands og Azerbajdsan hinir verstu yfir týndum atkvæðum til stuðnings Rússum

Utanríkis­ráðherrar Rússlands og Azerbajdsan hafa rætt um stigagjöfina í söngvakeppni Evrópu, Evróvisjón.

Finnland: Verður rússneska opinbert tungumál minnihluta

Nú eru um 62 þúsund rússneskumælandi í Finnlandi en gert er ráð fyrir að þeir verði orðnir um 240 þúsund árið 2050. Þetta þýðir að á 40 árum verða rússneskumælandi Finnar jafnmargir og sænskumælandi Finnar eru í dag. Fjöldi rússneskumælandi Finna hefur tvöfaldast á einum áratug. Hér er átt við fólk,...

ESB: Frakkar verða að breyta um stefnu eða sæta refsiaðgerðum ella segir fulltrúi Þýzkalands

Fulltrúi Þýzkalands í framkvæmda­stjórn Evrópu­sambandsins, Guenther Oettinger, sagði í gær að Frakkar yrðu að koma fram umbótum á lífeyriskerfi sínu og frelsisvæða vinnu­markað sinn eða horfast í augu við refsiaðgerðir af hálfu ESB. Í síðustu viku veitti ESB Frakklandi tveggja ára frest til að koma fj...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS