Joseph Stieglitz, Nóbelsverðlaunahafinn í hagfræði, sem er Íslendingum að góðu kunnur hefur ítrekað þá skoðun sína, að mikið aðhald í ríkisútgjöldum leiði til efnahagslegs ófarnaðar að því er fram kemur í Daily Telegraph í dag. Hann telur að sú stefna leiði til lengri kreppu og langvarandi þjáninga fólks.
Stieglitz telur að reynsla Íra sýni að sterkt aðhald leiði til minni framleiðslu, aukins atvinnuleysis og hækkandi ávöxtunarkröfu á skuldabréf viðkomandi ríkja. Nóbelsverðlaunahafinn segir, að það hafi ekki alþjóðlegar afleiðingar, þótt Írland fylgi slíkri stefnu en geri Bretland og Þýzkaland það hafi það víðtækari afleiðingar.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...
Grikkland: 70 bílar til afnota fyrir stjórnmálamenn
Gríska ríkisstjórnin hefur lagt fyrir gríska þingið upplýsingar um svonefnda „kurteisisbíla“ í eigu hins opinbera. Þessar upplýsingar eru lagðar fram vegna þrýstings frá þríeykinu um niðurskurð úgjalda og gagnsæi. Gríska ríkið á 153 bíla af þessu tagi. 70 þeirra eru til afnota fyrir stjórnmálamenn.
Þýzkaland: Aukin einkaneyzla tryggði örlítinn hagvöxt
Hagvöxtur í Þýzkalandi á fyrsta fjórðungi þessa árs var nánast enginn eða um 0,1% að því er fram kemur á BBC. Samdráttur varð í útflutningi og fjárfestingum en einkaneyzla jókst. Á síðasta fjórðungi síðasta árs varð samdráttur um 0,7%. Talið er að efnahagslægð sé gengin í garð, þgar samdráttur verðu...