Evrópumálaráðherra Frakklands sakar framkvæmdastjórn ESB um „hræsni“ í afstöðu sinni til franskra stjórnvalda vegna brottvísunar Síguna og segir frönsku þjóðina gæta sáttmála ESB. Ráðherrann var stóryrtur í garð ESB-þingsins og framkvæmdastjórnarinnar í Brussel mánudaginn 13. september.
Þegar Pierre Lellouche, Evrópumálaráðherra Frakka, var spurður um deiluna vegna Sígaunanna við framkvæmdastjórn ESB, sagði hann afstöðu hennar „hræsni“, sem skipti engu máli. Frakkland væri stórt, fullvalda ríki. Frakkar sætu ekki á skólabekk og hann ætlaði ekki að láta koma fram við sig fyrir hönd Frakka sem skólastrák. Frakkar yrðu ekki teknir á beinið.
Lelleouche velti einnig fyrir sér hlutverki framkvæmdastjórnarinnar. Samkvæmt 17. grein sáttmála ESB væri það hlutverk framkvæmdastjórnarinnar að fylgjast með framkvæmd gerðra samninga. „Franska þjóðin stendur vörð um þessa samninga,“ sagði franski ráðherrann á hinn bóginn.
Ónafngreindur viðmælandi vefsíðunnar EurActiv.fr sagði, að yfirlýsingar Lelleouche væru til marks um þjóðernislegt lýðskrum, sem nú væri lögð rækt við í Frakklandi. Nicolas Sarkozy, Frakklandsforseti, hefði notað ESB sér til framdráttar, þegar hann sat í forsæti leiðtogaráðs ESB. Nú hefði hann snúið við blaðinu.
Lellouche benti ESB-þingmönnum að halda sér á mottunni og vék sérstaklega orðum að formanni þingflokks frjálslyndra, Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Belgíu. Hann sagði honum að „taka því rólega“ og bætti við: „Hann veit ekkert um Sígauna og ætti að einbeita sér að málefnum Belgíu.“
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
NSA og FBI hafa hindrað rúmlega 50 tilraunir til hryðjuverka síðan 11. september 2001
Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna (NSA) og Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) hafa að eigin sögn komið í veg fyrir að minnsta kosti 50 tilraunir til hryðjuverka frá 11. september 2011. Google-fyrirtækið hefur óskað eftir að fá að birta hvernig þátttöku þess í verkefnum gegn hryðjuverkum hefur veri...
Forseti Kýpur fer fram á allsherjar endurskoðun björgunaraðgerða
Nikos Anastasiades, forseti Kýpur hefur skrifað leiðtogum evrusvæðisins bréf og farið fram á allsherjar endurskoðun á þeim skilmálum, sem Kýpur tók á sig vegna björgunarláns að upphæð 10 milljarðar evra. Í bréfinu segir forsetinn að Kýpur geti ekki uppfyllt þessa skilmála vegna þess að aðgerðirnar hafi skaðað efnahag landsins og bankakerfið meira en búizt var við.
Nefnd, sem fjallar um nýtt regluverk fyrir banka í kjölfar fjármálakreppunnar og starfar í tengslum við brezka þingið leggur til að æðstu stjórnendur banka skuli eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og missi milljóna punda í bónusgreiðslum ef þeir eigi þátt í falli banka í framtíðinni. Nefndin er þverpólitísk og í henni sitja bæði þingmenn og aðrir.
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í samfélagi þjóðanna í hátíðarræðu
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í samfélagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópuþjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópusambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...