Laugardagurinn 16. janúar 2021

Stórtap sænskra jafnaðarmanna - hægrimenn auka fylgi sitt


19. september 2010 klukkan 18:18

Útgönguspár sænsku þingkosningunum benda til þess, að jafnaðarmenn hafi tapað 5% miðað við síðustu kosningar, Moderaterna, hægri flokkur Fredriks Reinfeldts, forsætisráðherra, bætir við sig 2,9%. Stjórnarflokkarnir fengu 49,1%..

Jafnaðarmenn eru enn stærsti flokkurinn með 30% fylgi, Moderaterna fá 29,1%.

Sverigedemokratarna, flokkur lengst til hægri, fær 4,6% og menn á þing samkvæmt útgönguspám. Flokkurinn kann að ráða úrslitum um, hvort Reinfeldt tekst að mynda meirihlutastjórn að nýju. Forsætisráðherrann sagði fyrir kosningar, að hann mundi ekki sækjast eftir stuðningi flokksins.

Umhverfisflokkurinn, Miljöpartiet, hlaut góðan stuðning og fær 9%.

Mona Sahlin, leiðtogi sænskra jafnaðarmanna, sér sína sæng uppreidda vegna kosningaúrslitanna. Innan flokksins hefst nú leit að nýjum leiðtoga.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS