Fimmtudagurinn 22. apríl 2021

Lene Espersen segir af sér formennsku í danska Íhalds­flokknum


13. janúar 2011 klukkan 19:34

Lene Espersen, formaður danska Íhaldsflokksins, sagði af sér formennsku í flokknum á 19 mínútna löngum blaðamannafundi að kvöldi fimmtudagsins 13. janúar. Hún sagðist taka ákvörðun sína af tilliti til flokksins. Hún heldur áfram sem utanríkisráðherra.

Lene Espersen

Þingflokkur íhaldsmanna komst að þeirri niðurstöðu að morgni fimmtudags 13. janúar, að hann gæti ekki sturr Espersen lengur. Eftir það sögðu fjölmiðlar, að hún ætti ekki annan kost en fara með góðu eða verða rekin úr formannsembættinu.

Lene Espersen hefur dvalist í Qatar undanfarna daga. Tilkynnt hafði verið að hún mundi lenda á Kastrup klukkan 22.00 á danskan tíma í kvöld en hins vegar lenti vél hennar klukkan 15.00 og tókst henni á þann veg að skjóta sér undan fjölmiðlamönnum við komuna.

„Ég er undrandi á því hve atburðarásin hefur verið hröð. Fyrir viku taldi enginn að Lene Espersen yrðu ekki leiðtogi íhaldsmanna í næstu þingkosningum,“ segir Henrik Qvortrup, stjórnmálaritstjóri hjá TV 2.

Val um nýjan formann er talið standa á milli Brians Mikkelsens, efnahags- og atvinnumálaráðherra, og Lars Barfoeds, dómsmálaráðherra.

Samkvæmt dönsku fréttastofunni Ritzau er ekki um eiginlega valdabaráttu að ræða á milli þeirra, miklu frekar athugun og mat á því, hvor þeirra stendur betur að vígi.

Lene Espersen varð formaður Íhaldsflokksins 27. september 2008. Segir JyllandsPosten að segi hún af sér föstudaginn 14. janúar hafi hún setið 839 daga á formannsstóli.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS