Leiðtogafundur Evrópusambandsins í Brussel, sem hófst í gær og lýkur í dag er kominn að niðurstöðu um framtíðarskipulag neyðarsjóðs. Settur verður á stofn varanlegur sjóður, sem heitir á ensku European Stability Mechanism og hefur það hlutverk að veita aðstoð til aðildarríkja evrunnar, sem lenda í vandræðum. Gert er ráð fyrir að sjóðurinn ráði yfir um 700 milljörðum evra. Evruríkin eiga að greiða 80 milljarða evra í sjóðinn með fimm afborgunum á fimm árum. Að auki munu þau veita sjóðnum tryggingar, sem nema 620 milljörðum evra.

Samkvæmt fréttum BBC kom neyðaraðstoð við Portúgal ekki til umræðu. Portúgalar halda fast við að þeir ætli ekki að leita eftir slíkri aðstoð.
Hinn nýi sjóður (ESM) tekur við hlutverki hins tímabundna neyðarsjóðs ESB, sem kallaður hefur verið European Financial Stability Facility (EFSF) á árinu 2013. Ákvörðun um að auka lánagetu sjóðsins hefur verið frestað fram í júní að ósk Finna en kosningar fara fram í Finnlandi 17. apríl n.k.
Fyrir tveimur vikum náðu leiðtogar evruríkjanna samkomulagi um sérstakan efnahagsmálapakka, sem gengur undir nafninu evrusáttmálinn eða á ensku „euro-plus-pact“ eftir að sex ESB-ríki, sem ekki hafa tekið upp evru samþykktu að undirrita hann en það eru Danmörk, Pólland, Lettland, Litháen, Búlgaría og Rúmenía.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í samfélagi þjóðanna í hátíðarræðu
Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í samfélagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópuþjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópusambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...
José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...
Tvíhliða viðskiptaviðræður ESB og BNA formlega hafnar
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkjaforseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...
Finnland: Meirihluti andvígur aðild að Atlantshafsbandalaginu
Meirihluti Finna eða um 52% telur að Finnland eigi ekki að gerast aðili að Atlantshafsbandalaginu. Þetta hlutfall hækkaði í 59%, þegar spurt var um afstöðu til aðildar að NATÓ ef Svíar gerðust aðilar. Einungis 28% sögðust vilja feta í fótspor Svía. Sérfræðingar segja að þessi könnun sýni að engin breyting hafi orðið á afstöðu Finna.