Brezka dagblaðið The Guardian segir í dag, að stjórnvöld í Líbýu hafi sent leynilegan erindreka til London til þess að ræða við stjórnvöld þar um mögulega uppstokkun í landinu og útleið fyrir Gaddafí og fjölskyldu hans. Hinn leynileg erindreki, sem blaðið nafngreinir er sagður einn nánasti ráðgjafi eins sonar Líbýuleiðtogans. Heimsókn hans er talin til marks um að synir Gaddafís vilji finna útleið fyrir sig. Erindrekinn mun hafa fengið þau svör að Gaddafí yrði að láta af völdum og fyrrum ráðamenn yrðu sóttir til saka fyrir glæpi.
Moussa Koussa er yfirheyrður á afskekktum stað (safe house). Utanríkisráðherrann fyrrverandi er sagður í viðkvæmu andlegu ástandi, þar sem hann skildi fjölskyldu sína eftir í Líbýu og fór í bíl til Túnis og kvað vera að fara þangað í diplómatískum erindagjörðum.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Hlutabréf lækka um allan heim í kjölfar tilkynningar Seðlabanka Bandaríkjanna
Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnt í gær, að bankinn mundi smátt og smátt draga úr kaupum á markaði, sem hafa numið um 85 milljörðum dollara í hverjum mánuði. Afleiðingin af þessari tilkynningu varð sú, að hlutabréf voru seld í stórum stíl í Bandaríkjunum síðdegis í gær, sú sala breiddist út til Asíu í nótt og hélt áfram í Evrópu í morgun að því er fram kemur í Financial Times.
Danir standa með ESB gegn Færeyingum í síldar- og makríldeilum
Danir standa með Evrópusambandinu í fiskveiðideilum þess við Færeyinga. Svohljóðandi frétt birtist á RÚV í gærkvöldi: "Helle Thorning-Schmidt, forsætisráðherra Danmerkur, segir ríkisstjórn sína ekki eiga annars úrkosti en að fylgja Evrópusambandinu að málum í fiskveiðideilum við Færeyinga.
Gunnar Bragi um IPA-styrki: „...geta nýst að einhverju leyti sem EES-ríki...“
Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, gefur upplýsingar um meðferð svonefndra IPA-styrkja frá Evrópusambandinu, sem ætlaðir eru til að laga stjórnkerfi Íslands að regluverki ESB í samtali við Fréttablaðið í dag og segir: "Það má skipta þessum verkefnum, sem um ræðir í þrennt:; Í fyrsta lagi ...
Ástralía: Fékk höfuðhögg tók að tala ensku með frönskum hreim
Áströlsk kona tók að tala ensku með frönskum hreim eftir að hún vaknaði eftir umferðarslys þar sem hún hlaut höfuðhögg. Um er að ræða sjaldgæft heilkenni sem um 60 manns hafa greinst með á 100 árum segir í blaðinu Le Figaro. Leanne Rowe hefur aldrei farið til Frakklands og á enga franska vini.