Sarkozy, Frakklandsforseti, hefur viðrað hugmyndir um að fyrirtæki, sem hafa fleiri en 50 starfsmenn í þjónustu sinni verði skylduð til að greiða starfsmönnum launauppbót í hvert sinn sem þau hækka arðgreiðslur. Þessa hugmynd setti forsetinn fram á fundi með starfsmönnum fyrirtækis í austurhluta Frakklands í síðustu viku. Hann sagði þá, að í hvert sinn, sem kreppti að væri ætlast til þess að starfsmenn öxluðu einhverjar byrðar. Þess vegna væri sanngjarnt að starfsmenn nytu góðs af því, þegar vel gengi.
Samkvæmt fréttum Wall Street Journal virðast bæði samtök vinnuveitenda og launþega hafa tekið hugmyndinni illa.
Sarkozy á í pólitískum erfiðleikum í Frakklandi. Ný skoðanakönnun bendir til að hann njóti einungis fylgis um 28% Frakka. Atvinnuleysi er nálægt 10% og ímynd forsetans er sú, að hann sé vinur hinna ríku.
Neikvæð viðbrögð verkalýðsfélaganna byggjast á því, að í hugmyndinni felist mismunun á milli launþega, sem vinni í fyrirtækjum, sem hafa fleiri en 50 manns í sinni þjónustu og hinna sem vinni í smærri fyrirtækjum. Minna en helmingur launþega í Frakklandi vinna í fyrirtækjum, sem hafa fleiri en 50 starfsmenn.
Vinnuveitendur halda því hins vegar fram, að þetta sé bara aðferð til að leggja auknar byrðar á fyrirtækin. Önnur rök eigi við um arðgreiðslur en launagreiðslur.
+Hér birtist í heild bréf sem Víglundur Þorsteinsson afhenti í Alþingishúsinu mánudaginn 10. febrúar. Áður hafði Víglundur skrifað Einari K. Guðfinnssyni forseta Alþingis um sama efni.+ Bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis, Hr. formaður Ögmundur Jónasson Í framhaldi af b...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.