Þriðjudagurinn 10. desember 2019

Þýskur ESB-þingmaður sviptur doktorstitli frá Heidelberg


15. júní 2011 klukkan 22:07

Þýskur ESB-þingmaður var miðvikudaginn 15. júní sviptur doktorsnafnbót sinni vegna ritstuldar. Háskólinn í Heidelberg sagðist hafa tilkynnt Silvönu Koch-Mehrin þingmanni að hún mætti ekki lengur bera doktorstitil frá skólanum þar sem rannsókn hefði sýnt að „umtalsverður hluti“ ritgerðar hennar frá árinu 2000 væri afrit úr ritum annarra.

Silvana Koch-Merin

Koch-Mehrin (40 ára) var einu sinni talin rísandi stjarna innan Frjálslynda demókrataflokksins (FDP) í Þýskalandi, samstarfsflokks Angelu Merkel í ríkisstjórn landsins. Vinsældir hennar voru þó teknar að dvína þegar fréttir bárust af meintum ritstuldi hennar í maí sl.

Hún lét af formennsku fyrir flokk sinni á ESB-þinginu 11. maí, sagði af sér varaforsetaembætti í þinginu og hætti í stjórn FDP en hélt áfram sem ESB-þingmaður.

Miðvikudaginn 15. júní sagði talsmaður Koch-Mehrin í yfirlýsingu að ESB-þingmaðurinn væri „undrandi“ og að lögfræðingar hennar mundu kanna lögmæti ákvörðunar háskólans.

„Í 11 ár hef ég vitað að doktorsritgerð mín er ekkert meistaraverk. ... Háskólinn veitti mér hins vegar doktorstitil árið 2000 eftir að kynnt sér hana og augljósa veikleika hennar,“ sagði í yfirlýsingunni. „Ég harma þessa ákvörðun mjög.“

Karl-Theodor zu Guttenberg, vinsælasti ráðherrann í ríkisstjórn Merkel, sagði af sér sem varnarmálaráðherra 1. mars eftir að hann var sviptur doktorstitli fyrir ritstuld. Hann hefur síðan hlotið uppnefnið: „Barón Cut-and-Paste“.

Meðal þeirra sem hafa misst doktorstitil vegna þessara umræðna í Þýsklandi er Veronica Sass, dóttir Edmunds Stoibers, sem var árum saman forsætisráðherra í Bæjaralandi.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS