Miðvikudagurinn 27. janúar 2021

AGS: enn „umtalsverður“ efnahagsvandi á Spáni


22. júní 2011 klukkan 22:03

Spánverjar standa enn frammi fyrir „umtalsverðum“ efnahagsvanda segir í nýrri árlegri skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Spænska ríkisstjórnin verði enn að leggja áherslu á niðurskurð opinberra útgjalda og leiðir til að skapa meira frelsi á vinnumarkaði.

Stjórnvöld í Madrid hafa allt undanfarið ár unnið að opinberum sparnaði í því skyni að minnka skuldir ríkisins. Þau hafa þó ekki óskað eftir neyðarláni eins og Grikkir og Portúgalir.

Í skýrslu AGS segir ekkert um hvort Spánverjar þurfi á slíku láni að halda en á hinn bóginn er varað við því að efnahagsvandinn á evru-svæðinu kunni enn að aukast og það gæti aukið lánakostnað spænska ríkisins og banka á Spáni.

Með hliðsjón af þessu telur AGS að ekki megi „slaka á neinu varðandi umbætur“ til að ýta undir hagvöxt á Spáni og draga úr áhyggjum á fjármálamörkuðum. AGS segir að atvinnuleysi á Spáni, 21% og hið mesta í Evrópu – sé „óviðunandi hátt“.

Spænska ríkisstjórnin vinnur að breytingum á atvinnulöggjöf landsins til að draga úr atvinnuleysi. Hún vonar að með því verði fyrirtæki hvött til að ráða nýtt fólk til starfa en til þessa hefur verið mjög erfitt fyrir spænsk atvinnurekendur að segja upp starfsfólki.

Þrátt fyrir viðvörunarorð telur AGS að spænsk stjórnvöld séu enn á réttri braut varðandi lækkun ríkissjóðshalla úr 9,2% árið 2010 í 6% á þessu ári.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS