Sunnudagurinn 26. maí 2013

ESB tekur að nýju upp þráðinn í umræðum um net­eftirlit


27. júlí 2011 klukkan 14:48

Innan framkvæmdastjórnar ESB í Brussel búa menn sig undir að taka upp þráðinn að nýju í umræðum um eftirlit með færslum á netið í því skyni að draga úr líkum á ódæðisverkum illvirkja á borð við Anders Behring Breivik sem handtekinn hefur verið í Noregi vegna sprengjutilræðis og fjöldamorða.

Michele Cercone, talsmaður framkvæmdastjórnarinnar, segir að embættismenn ESB hafi áhuga á að koma á fót upplýsingamiðstöð „þar sem fylgst er með vaxandi öfgum í umræðum á netinu“. Breivek setti 1.500 blaðsíðna stefnuyfirlýsingu inn á netið fyrir ódæði sitt þar sem hann lýsti þeirri banvænu hugmyndafræði sem hann fylgdi.

Í september 2010 lagði framkvæmdastjórn ESB fram tillögu um hert eftirlit með þeim netsíðum þar sem auglýst eru efni sem hugsanlega má nota til að framleiða sprengjur með efnum til landbúnaðarframleiðslu. Breivik notaði einmitt slík efni í sprengju sína.

Tillagan náði ekki fram að ganga þar sem einstök ríki vildu ekki leggja fram persónuupplýsingar um netnotendur í löndum sínum.

„Atburðirnir í Noregi verða vafalaust til þess að málið verður tekið upp að nýju, aðstæður hafa breyst,“ segir talsmaður framkvæmdastjórnarinnar.

Til marks um ný viðhorf má nefna að José Luis Zapatero, forsætisráðherra Spánar, hafði orð á því 25. júlí að hann „biði pólitískra aðgerða af hálfu ESB“ eftir illvirkið í Ósló. Cécilia Malmström, innanríkismálastjóri ESB, er í sambandi við Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, en ekki er vitað hvað þeim hefur farið í milli.

Heimild: EurActiv.fr

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kínverjar reyna að blekkja Evrópu­menn með gervi-aspiríni

Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.

Grikkland: Flótti frá PASOK

Fyrrverandi menntamála­ráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "

Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu

Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráð­stefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópu­sambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.

Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns

Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, for­stjóri AGS og fyrrum fjármála­ráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútu­greiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS