
Bretar geta ekki tryggt eigið öryggi eftir árið 2015 á 200 ára afmæli orustunnar við Waterloo skv. því sem fram kemur í skýrslu brezkrar þingnefndar um fyrirhugaðan niðurskurð á útgjöldum til hermála í Bretlandi. Í skýrslunni er David Cameron, forsætisráðherra, gagnrýndur harðlega fyrir ummæli þess efnis, að þrátt fyrir niðurskurð geti Bretar haldið uppi fullri starfsemi á öllum sviðum varnarkerfis síns.
Frá þessu er sagt í The Scotsman í dag en áður hefur komið fram í fréttum, að brezki herinn væri mög gagnrýninn á fyrirætlanir Camerons um heimkvaðningu brezkra hermanna frá Afganistan.
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Kínverjar reyna að blekkja Evrópumenn með gervi-aspiríni
Franskir tollverðir hafa gert upptæka 1,2 milljón skammta af gervi-aspiríni frá Kína.
Fyrrverandi menntamálaráðherra Grikklands, Anna Diamantopoulo, sem er úr PASOK, flokki sósíalista, sem stjórnaði Grikklandi í upphafi grísku kreppunnar, lýsti í gær yfir áformum um að stofna nýjan flokk. Hún sagði í viðtali við gríska ríkissjónvarpið að flokkur sósíalista væri kominn að leiðarlokum. "
Forseti Írlands: ESB endurspeglar ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu
Michael D Higgins, forseti Írlands sagði í gær á alþjólegri ráðstefnu háskóla í Evrópu, sem haldin er í Háskóla Írlands (NUI Galway), að Evrópusambandið endurspegli ekki beztu hagsmuni fólksins í Evrópu. Hann gagnrýndi ESB fyrir að hafa of litla trú á vitsmunalegum hefðum (intellectual tradition) Evrópu.
Franskur dómstóll: Lagarde skal ekki hafa stöðu grunaðs manns
Franskur dómstóll hefur komist að þeirri niðurstöðu, að Christine Lagarde, forstjóri AGS og fyrrum fjármálaráðherra Frakklands skuli ekki hafa stöðu grunaðs manns í hneykslismáli, sem varðar 400 milljón evra mútugreiðslur til stuðningsmann Nicholas Sarkozy, fyrrum forseta Frakklands. Þetta kemur fram í Financial Times.