Frjálsir demókratar í Þýskalandi hafa neitað því að þeir reyni að losa sig við Guido Westerwelle, utanríkisráðherra og fyrrverandi flokksformann. Ráðherrann sætir harðri gagnrýni fyrir að kúvenda í afstöðu sinni til ákvörðunar NATO um íhlutun í Líbíu.
„Orðrómur um að ætlunin sé að skipta um utanríkisráðherra er ekki á rökum reistur,“ sögðu heimildarmenn meðal frjálslyndra við fréttastofuna DAPD sunnudaginn 28. ágúst.
Westerwelle skipti algjörlega um skoðun á sunnudeginum þegar hann viðurkenndi lykilhlutverk NATO í baráttunni gegn Moammar Gaddafi í Líbíu. Þetta kom fram í viðtali Die Welt am Sonntag við utanríkisráðherrann, þegar hann hrósaði loks „þeirri hjálp sem hefði farlist í alþjóðlegum hernaðaraðgerðum“.
Hann hafði áður sætt gagnrýni fyrir að þakka stuðningi Þjóðverja við viðskiptabann Sameinuðu þjóðanna á Líbíu þann árangur sem náðst hefði í byltingunni í Líbíu.
Philip Rösler, vara-kanslari, efnahagsmálaráðherra og eftirmaður Westerwelle sem formaður frjálslyndra, staðfesti að hann hefði hvatt utanríkisráðherrann mjög til þess að viðurkenna jákvæð áhrif hernaðaraðgerðanna. Sjálfur varð Rösler á föstudag fyrstur þýskra ráðherra til að hrósa NATO á afdráttarlausan hátt vegna aðgerðanna í Líbíu.
Heimild: Deutsche Welle.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.