Laugardagurinn 14. desember 2019

Þorgerður Katrín: Ákveðnir aðilar hlakka yfir ástandinu á evru-mörkuðum vegna andstöðu við ESB


24. september 2011 klukkan 21:31
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir „sorglegt að fylgjast með umræðunni hér heima og erlendis þar sem ákveðnir aðilar hlakki yfir ástandinu [á evrópskum fjármálamörkuðum] vegna pólitískrar afstöðu til ESB. Það muni hins vegar allir tapa ef ekki takist að ná tökum á ástandinu og efnahagsumrótið í Evrópu snerti Ísland vissulega með beinum hætti“. Þetta kom fram á fundi Samtaka atvinnulífsins (SA) og Samtaka iðnaðarins 16. september sl. en sagt er frá ræðu Þorgerðar á vefsíðu SA laugardaginn 24. september.

Þorgerður Katrín sagði á fundinum sem snerist um hagvaxtarhorfur í Evrópu og möguleg áhrif á Íslandi að ástandið á evrópskum fjármálamörkuðum væri „grafalvarlegt og spár sumra stjórnmálamanna og sérfræðinga um mögulega framvindu hrollvekjandi“.

Þorgerður vék að aðildarumsókn Íslands að ESB og sagði að þjóðin ætti „að fá að kjósa um aðild að ESB að afloknum aðildarviðræðum. Ekki ætti að hafa það tækifæri af landsmönnum að taka afstöðu með eða á móti ESB“. Hún taldi að stjórnmálamenn ættu „að einbeita sér að því að ná sem bestum aðildarsamningi fyrir Íslands“ svo að almenningur gæti tekið afstöðu til hans.

Þorgerður sagði skrýtið á 21.öldinni að ákveðnir aðilar í íslenskum samfélagi berðust „gegn auknum aðgangi þjóðarinnar að frjálsum markaði“. Íslenskt efnahagslíf þrifist á útflutningi og Evrópa væri og yrði „mikilvægasta markaðssvæði íslenskra fyrirtækja“ hvort sem mönnum líkaði það betur eða verr.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS