Föstudagurinn 5. mars 2021

Stjórnmálahlutföll í Grikklandi breytast


6. október 2011 klukkan 11:39

Nýjustu skoðanakannanir í Grikklandi sýna að viðhorf almennings til ríkisstjórnar George Papandreous og forsætisráðherrans sjálfs hafa breyst mikið frá því í upphafi ársins. Forsætisráðherrann naut jafnan mestra vinsælda en nýlegar kannanir sýna að Antonis Samaras, formaður hins hægri sinnaða stjórnarandstöðuflokks, Nýja lýðræðisflokksins, nýtur meiri vinsælda. Hvorugur þeirra er þó í hávegum hafður.

Mótmæli í Aþenu miðvikudaginn 5. október 2011.

Í einni könnun lýstu aðeins 17% trausti á Papandreou en aðeins 26% töldu að Samaras mundi standa sig betur sem forsætisráðherra. Meira en 30% sögðust óákveðnir eða ætluðu að sitja heima yrði gengi til kosninga.

Miðvikudaginn 5. október var 24 stunda verkfall í Grikklandi. Öll starfsemi á vegum ríkis og sveitarfélaga lá niðri, þar á meðal í skólum, dómstólum og á flugvöllum.

Nú er rifjað upp í Grikklandi að á áttunda áratugnum hafi mótmæli á götum úti stuðlað að því að hrekja herforingjastjórnina í landinu frá völdum. Hins vegar telja menn nú á mótmæla-þreyta sé tekin að segja til sín en sumarið 2010 kom einnig oft til mótmæla í Grikklandi vegna efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar.

Talið er að flestir hinna 20.000 manna sem fóru út á götur til að mótmæla miðvikudaginn 5. október hafi verið opinberir starfsmenn sem létu í ljós reiði sína vegna launalækkana og uppsagna. Aðrir Grikki þurfi að vinna og geti ekki leyft sér að efna til verkfalla.

Heimild: The New York Times

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS