Mario Draghi, fráfarandi bankastjóri Seðlabanka Ítalíu, sem tekur við sem aðalbankastjóri Seðlabanka Evrópu í næsta mánuði, segir skv. frásögn Daily Telegraph að Ítalía verði að grípa til enn harðari aðhaldsaðgerða, ef ekki eigi illa að fara. Þær aðhaldsaðgerðir, sem ríkisstjórn Berlusconi hafi gripið til dugi ekki.
Ávöxtunarkrafan á ítölsk skuldabréf til 10 ára fór yfir 6% í ágúst. Þá greip Seðlabanki Evrópu inn í með kaupum en nú hefur krafan hækkað aftur og er komin í 5,71%. Bundesbank hefur lýst sig andvígan frekari kaupum Seðlabanka Evrópu á ítölskum skuldabréfum.
Nouriel Roubini, prófessor við New York University, sem hefur orðið frægur fyrir að segja fyrir um fjármálakreppuna 2008, segir að evrusvæðið sé tifandi tímasprengja og að einungis Þýzkaland geti bjargað.
Vandamál Ítala eru enn flóknari vegna pólitískrar krísu, sem upp er komin. Ríkisstjórn Berlusconi kom ákveðnum þætti fjárlaga ekki í gegnum ítalska þingið fyrir nokkrum dögum og nú verður Berlusconi að fara fram á traustsyfirlýsingu þess. Erlendir fjölmiðlar segja að nú fjari mjög undan völdum Berlusconi á Ítalíu.
Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.