Sunnudagurinn 7. ágúst 2022

Uppreisn innan PASOK-krefjast afsagnar Papandreous og þjóð­stjórnar


1. nóvember 2011 klukkan 14:19
George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB, og José Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, fagna niðurstöðu leiðtogaráðs ESB 21. júlí 2011.

Sex þingmenn PASOk hafa gert uppreisn gegn Papandreou, forsætisráðherra Grikklands í kjölfar ákvörðunar hans um þjóðaratkvæðagreiðslu um samkomulagið við ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu og krefjast afsagnar hans. Þeir segja ákvörðun hans ábyrgðarlausa. Jafnframt hefur einn þingmanna PASOK sagt sig úr flokknum, þannig að meirihluti Papandreou er nú 152 þingsæti af 300. Þá hefur annar þingmaður flokksins hvatt til myndunar þjóðastjórnar.

Atkvæðagreiðsla um traust á ríkisstjórnina fer fram í gríska þinginu á föstudag. Skv. fréttum bæði BBC og ekathimerini er mikið um að vera í Aþenu. Samaras, leiðtogi Nýja Lýðræðisflokksins átti fund með forseta Grikklands í morgun og mikið er unnið að því bak við tjöldin að fella ríkisstjórnina.

Mikil lækkun hefur orðið á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag. París hefur lækkað nú síðdegis um 5,03%, Frankfurt um 4,97% og London um 2,83%.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS