Fimmtudagurinn 23. maí 2013

G-20 ríkin: Samkomulag um að efla AGS-fundurinn misheppnaðist segir Guardian


5. nóvember 2011 klukkan 07:43
Nicolas Sarkozy og Silvio Berlusconi á blaðamannafundi í Róm.

Fundi leiðtoga G-20 ríkjanna í Cannes lauk í gær með almennu samkomulagi um að efla AGS en án þess að gerð væri grein fyrir því með ítalegri hætti hvernig það yrði gert og hvernig leiðtogarnir ætli að leysa vandamál evrusvæðisins. Sumir fréttamenn halda því fram, að leiðtogunum hafi mistekizt að ná raunverulegu samkomulagi. Wall Street Journal segir að samkomulagið sé um það eitt að halda áfram að tala saman.

Brezka blaðið Guardian segir berum orðum að fundurinn hafi misheppnast. Obama hafi ekki verið tilbúinn til að skuldbinda Bandaríkin um aukin framlög til AGS vegna þrýstings frá Bandaríkjaþingi um að gera slíkt ekki á meðan allt væri í óvissu um hvernig færi á evrusvæðinu.

Hins vegar varð niðurstaða fundarins sú að setja Ítaliu undir eftirlit AGS, þótt ekki sé á þessu stigi rætt um lánveitingar til Ítalíu. Hins vegar segir Financial Times, að AGS hafi boðið Ítalíu lán á lágum vöxtum en Berlusconi hafi hafnað því. Ávöxtunarkrafan á ítölsk skuldabréf er enn mjög há, þótt Seðlabanki Evrópu sé að kaupa slík bréf á markaði.

Sarkozy sagði í lok fundarins: Við ætlum að verja Evrópu og evruna.

Markaðir féllu í gær. Dow Jones lækkaði um 0,51%, Nasdaq um 0,44%, London um 0,33%, Frankfurt um 2,72%, París um 2,25%.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Víglund Þorsteinsson Pistill

Evruland er nýlenda Þýskalands

Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Evrópa: Efnamunur minnstur í Noregi og á Íslandi

Efnamunur er minnstur í Noregi og á Íslandi af Evrópu­löndum að því er fram kemur á vefmiðli finnsku Yle fréttastofunnar. Mesti efnamunur er í Lettlandi og Búlgaríu. Efnamunur í Finnlandi er fyrir neðan evrópskt meðaltal. Árið 2010 voru hini efnameiri í Finnlandi með um 5,3 sinnum hærri tekjur en þeir efnaminnstu.

Verð á hluta­bréfum lækkar á heimsvísu í kjölfar mikillar lækkunar í Japan

Verð á hluta­bréfum hefur verið að lækka á alþjóðlegum mörkuðum í morgun í kjölfar umtalsverðrar lækkunar á Nikkei vísitölunni í Japan. Ástæðan er annars vegar minnkandi fjárstreymi frá Seðlabanka Japans og hinsvegar að hagvöxtur í Kína er að hægja á sér. Nikkei-vísitalan hefur hækkað um 80% á síðustu 6 mánuðum en lækkaði í nótt um 7,3%, sem er mesta lækkun á einum degi í tvö ár.

Valkostur fyrir Þýzkaland: Evran er ástæðan fyrir miklu atvinnuleysi í Evrópu

Bernd Lucke, leiðtogi hins nýja þýzka stjórnmála­flokks, Valkosts fyrir Þýzkaland, segir að evran sé meginástæðan fyrir því mikla atvinnuleysi, sem ríki í Evrópu og að riki á borð við Spán og Grikkland eigi að yfirgefa evruna til þess að ná tökum á efnahagsvanda sínum.

Stokkhólmur: Kveikt í bílum-íkveikjur í níu borgarhverfum-vandamál tengd innflytjendum

Í gærkvöldi og í morgun var kveikt í bílum í Stokkhólmi og ólæti breddust út til margra hverfa borgarinnar að því er fram kemur í Financial Times, sem segir að þetta hafi gerzt þrjá daga í röð. Lög­reglan í Stokkhólmi hefur handtekið einhverja og segir stöðuna flókna vegna fjölda hverfa en bendir á, að staðan sé rólegri í Husby, hverfi, þar sem margi innflytjendur eru saman komnir.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS