Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta tókst ekki að knýja fram þá „skýru niðurstöðu“ á leiðtogafundi G20 ríkjanna í Cannes sem hann hafði boðað segir Le Monde laugardaginn 5. nóvember að loknum fundinum.
Blaðið segir að mál hafi farið á annan veg en Sarkozy hafi vænst vegna stjórnmála- og skuldakreppunnar í Grikklandi. Fyrir Sarkozy hafi vakað að fundurinn snerist um hinar stóru línur heimsviðskipta og efnahagsmála. Þess í stað hafi Sarkozy þurft að einbeita sér að kreppunni á evru-svæðinu og innan ESB.
Í ályktun G20 leiðtogafundarins sé að finna nokkur atriði sem lúti að alþjóðareglum um fjármálaviðskipti, þau einkennist af vandræðagangi. Eftir að hafa krafist þess að ríkisstjórnir Grikklands og Ítalíu gripu til og framkvæmdu aðhaldsaðgerðir hafi forsetinn sjálfur neyðst til að boða slíkar aðgerðir í Frakklandi strax að loknum G20 fundinum.
Blaðamaður Le Monde segir í upphafi frásagnar sinnar af G20 fundinum:
„Niðurlæging og mikil einsemd: þetta upplifðu leiðtogar evru-ríkja og Nicolas Sarkozy, sem stjórnaði nú G20 fundi í síðasta sinni, á fundinum sem lauk í Cannes föstudaginn 4. nóvember. Með því að vekja máls á þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn frá Brussel-fundinum 27. október sem átti að bjarga landi hans eyðilagði gríski forsætisráðherrann hina góðu skipan sem átti að ríkja meðal G20. Að menn öðlist að nýju trú á evru-svæðinu á langt í land.“
ESB-aðlögun: Virka peningarnir?
Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...