Fimmtudagurinn 20. júní 2013

Samaras segir Papandreou hættulegan fyrir Grikkland


5. nóvember 2011 klukkan 22:54

Antonis Samaras, formaður Nýja lýðræðisflokksins, stærsta stjórnarandstöðuflokksins í Grikklandi, hittir Grikklandsforseta sunnudaginn 6. nóvember til að ræða stjónmálastöðuna en Samaras neitar að taka þátt í þjóðstjórn að tillögu George Papandreous, hins stórlaskaða forsætisráðherra.

Antonis Samaras

Samaras segir að forsætisráðherrann sé „hættulegur fyrir Grikkland“og krefst þess að tafarlaust verði gengið til þingkosninga. Papandreou segir að ekki sé unnt að kjósa fyrr en eftir að samkomulag evru-ríkjanna til lausnar skuldavandanum hafi verið samþykkt. Hann segir að það mundi leiða til hörmunga fyrir þjóðina að kjósa til þings núna.

Tvær skoðanakannanir sem birtar voru laugardaginn 5. nóvember sýna að meirihluti Grikkja vill heldur þjóðstjórn en kosningar í skyndi.

Vangaveltur eru um að Evangelos Venizelos, núverandi fjármálaráðherra og keppinautur Papandreous í sósíalistaflokknum, verði forsætisráðherra í nýrri stjórn með breiðum stuðningi.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

FBI tekin til við að nota drón til eftirlits í Bandaríkjunum

Robert Mueller, for­stjóri Alríkislög­reglu Bandaríkjanna (FBI), hefur viðurkennt að lög­reglan noti drón, fjarstýrð flugför, til eftirlits í Bandaríkjunum. Þá vinni ýmsar löggæslu­stofnanir að því að efla getu sína til að nýta drón í störfum sínum.

Assange segist vinna að því að tryggja Snowden hæli á Íslandi

Julian Assange, stofnandi WikiLeaks, sem dvelst sem pólitískur flóttamaður í sendiráði Ekvador í London, segir við BBC að hann reyni að koma á samkomulagi sem geri Edward Snowden, öryggisverktaka frá Bandaríkjunum sem lak trúnaðarupplýsingum og dvelst nú í Hong Kong, kleift að fá hæli á Íslandi.

Finnland: Leyniþjónustan vill almenna heimild til að hlera símtöl og fylgjast með netinu

Finnska leyniþjónustan vill að sögn Yle fá heimild til að hlera öll símtöl og fylgjast með allri umferð á netinu að því er fram kemur á euobserver. Antti Pelttari, forstöðumaður leyniþjónustunnar hvetur til þess að stofnunin fá slíka heimild án þess að þurfa að leita leyfis í hverju tilviki.

Hluta­bréf lækka um allan heim í kjölfar tilkynningar Seðlabanka Bandaríkjanna

Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnt í gær, að bankinn mundi smátt og smátt draga úr kaupum á markaði, sem hafa numið um 85 milljörðum dollara í hverjum mánuði. Afleiðingin af þessari tilkynningu varð sú, að hluta­bréf voru seld í stórum stíl í Bandaríkjunum síðdegis í gær, sú sala breiddist út til Asíu í nótt og hélt áfram í Evrópu í morgun að því er fram kemur í Financial Times.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS