Tveir litlir hægri flokkar hafna þátttöku í ríkisstjórn án Nýja lýðræðisflokksins
Financial Times segir, að náist ekki samkomulag við stærsta stjórnarandstöðuflokkinn í Grikklandi, Nýja lýðræðisflokkinn undir forystu Samaras takist Papandreou ekki að tryggja útborgun á næsta áfanga neyðarláns til Grikklands að upphæð 8 milljarðar evra, en það gæti aftur leitt til greiðsluþrots Grikklands verði sá áfangi ekki greiddur út. Herman Van Rompuy, forseti ráðherraráðs ESB hefur gefið til kynna að báðir aðalflokkarnir i Grikklandi verði að koma að lausn málsins.
Leiðtogar tveggja lítilla flokka á hægri kantinum, LAOS og Lýðræðisbandalagsins, hafa sagt að þeir muni ekki taka þátt í þjóðstjórn án þátttöku Nýja lýðræðisflokksins. Áður hafði komið fram, að Evangelos Venizelos gæti hugsanlega náð samkomulagi við þá. Tveir flokkar á vinstri kanti stjórnmálanna hafa tekið í sama streng.
Samaras hefur lýst þeirri skoðun að hægt sé að kjósa um miðjan desember.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.