Tugþúsundir komu á mótmælafund í Róm í gær, sem skipulagður var af helzta stjórnarandstöðuflokknum á Ítalíu, Lýðræðisflokknum, þar sem afsagnar Berlusconi var krafizt. Forsætisráðherrann segir hins vegar að fréttir fjölmiðla á Ítalíu um að hann liggi undir þrýstingi frá nánum samstarfsmönnum um að segja af sér séu kjaftasögur.
Þetta kemur fram í Berlingske Tidende og Wall Street Journal í dag, sem segir að stjórnarandstöðuleiðtogar á Ítalíu hafi hvað eftir annað fundað með forseta landsins, Giorgio Napolitano, undanfarna daga, en forsetinn hefur vald til þess að rjúfa þing og efna til kosninga.
WSJ segir að fjárfestar hafi hrokkið við þá ákvörðun G-20 ríkjanna að setja Ítalíu undir sérstakt eftirlit AGS, sem hafi leitt til mikillar sölu á ítölskum skuldabréfum og hækkandi ávöxtunarkröfu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.