Ís í Norður-Íshafi bráðnar svo hratt að spár eru um að sumarið 2015 verði unnt að sigla þvert yfir íslausan Norðurpólinn. Þetta segir Peter Wadhams, prófessor við Cambridge-háskóla á Bretlandi, segir að ný líkön að framtíðarþóun sýni þetta.
Aljóðaorkumálastofnunin (IEA) varar við því að ekki verði unnt að sporna gegn loftslagsbreytingu eftir árið 2017. Stofnunin sendi frá sér skýrslu í vikunni þar sem segir að verði ekki gjörbreyting á orkuframleiðslu í heiminum fyrir árið 2107 verði erfiðara og dýrara en ella að ná þeim markmiðum sem hafa verið sett um hreinleika andrúmsloftsins.
Á alþjóðavettvangi hafa menn komið sér saman um að halda hækkun hita innan við 2°C. Verði hækkunin meiri yrði ekki við neitt ráðið.
Peter Wadhams segir í breska blaðið The Daily Telegraph að rannsóknir sínar hafi leitt í ljós að ísmagnið minnki svo hratt að það verði brátt að engu. Mjög líklegt sé að þetta gerist árið 2015 og hann sé nær fullviss um að svo verði.
Eldri líkön um ís Norður-Íshafi hafa almennt beinst að útbreiðslu eða umfangi íssins en í ár hafa loftslagsfræðingar í ríkara mæli beitn atbygli sinni að þykkt íshellunnar. Rannsóknir sýna að þykktin minnkar ár frá ári.
Síðasta vetur var útbreiðsla íss í Norður-Íshafi hin minnsta frá því að mælingar með gervihnöttum hófust.
Heimild: BarentsObserver.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.