Knut Storberget, dómsmálaráðherra Noregs, hefur sagt af sér embætti. Grete Faremo varnarmálaráðherra verður dómsmálaráðherra og Espen Barth Eide varnarmálaráðherra. Þau eru öll í Verkamannaflokki Jens Stoltenbergs forsætisráðherra.
Stoltenberg sagði að hann hefði lagt að Storberget að sitja saman í ríkisstjórninni en dómsmálaráðherrann hefði borið við persónulegum aðstæðum og sagðist Stoltenberg virða þá afstöðu. Forsætisráðherrann tilkynnti að breytt yrði um nafn á ráðuneytinu við ráðherraskiptin í stað gamla nafnsins Dóms- og lögreglumálaráðuneytið (Justis- og politidepartementet) kæmi Dóms- og viðbragðsráðuneytið (Justis- og beredskapsdepartementet).
Knut Storberget hefur verið dómsmálaráðherra í Noregi síðan 2005 og setið á stórþinginu fyrir Hedmark síðan 2001. Hann starfaði sem sakamálalögmaður.
Á vefsíðunni ABC Nyheter segir að Storberget hafi um nokkurt skeið viljað láta af ráðherrembætti vegna hins mikla vinnuálags og þrýstings frá fjölmiðlum. Norska blaðið VG segir að Storberget hafi ætlað að hætta í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar í september en vegna atburðanna 22. júlí hafi hann ákveðið að fresta því þar til hann hefði gefið stórþinginu skýrslu um atburðina en það gerði hann fimmtudaginn 10. nóvember.
Grete Faremo var dómsrmálaráðherra í ríkisstjórn Thorbjørns Jaglands 1992 til 1996. Espen Barth Eide hefur unnið að öryggis- og utanríkismálum um langt árabil meðal annars við hlið utanríkisráðherra og varnarmálaráðherra Verkamannaflokksins.
.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.