Evrukreppan er farin að ógna Berlín, segir Reuters-fréttastofan í morgun í kjölfar misheppnaðs skuldabréfaútboðs þýzku ríkisstjórnarinnar. Smitunin á evrusvæðinu er að breiðast út. Einungis seldust um 2/3 af þeirri upphæð, sem að var stefnt en um var að ræða 6 milljarða evra í 10 ára bréfum með 2% ávöxtun. Bréf seldust fyrir 3,9 milljarða evra.
Tuttugu hagfræðingar sem Reuters talaði við eftir hið misheppnaða útboð sögðu að evran mundi ekki lifa af í óbreyttu formi. Sumir þeirra spáðu því að eftir mundi standa minni kjarni evruríkja.
Wolfgang Schauble, fjármálaráðherra Þýzkalands segir að Þjóðverjar eigi ekki við fjármögnunarvanda að stríða þrátt fyrir þetta. Reuters segir að fáir dragi orð hans í efa, hitt sé ljóst að þrýstingur á Þýzkaland sjálft fari vaxandi.
Merkel, Sarkozy og Monti, hinn nýi forsætisráðherra Ítalíu hittast í Strassborg í dag.
Það vakti líka óróa á mörkuðum í gær, að Belgar þrýsta nú á Frakka að borga meira vegna Dexía en talið var að vandamál þess banka hefðu verið kláruð fyrir nokkrum vikum.
Evruland er nýlenda Þýskalands
Nú þegar evran er að ná inn á á annan tuginn í vegferð sinni er margt að opinberast og raungerast með öðrum hætti en væntingar stóðu upphaflega til . Flest sem bendir nú til þess að hún muni ekki ná því að fylla tvo tugi og líði undir lok nú á næstu árum. Það dauðastríð mun ekki taka langa...
Ítalía: Beppe Grillo ætlar að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB og evruna
Beppe Grillo, leiðtogi 5-stjörnu-hreyfingarinnar á Ítalíu, sigurvegara kosninganna í febrúar 2013 ætlar að beita sér fyrir söfnun 500.000 undirskrifta til að knýja fram þjóðaratkvæðagreiðslu á Ítalíu um ESB og evruna. Grillo sem er í stjórnarandstöðu á ítalska þinginu ætlar að þvinga fram þjóðaratk...
Dansmærin Ruby breytir framburði sínum í máli sem tengist Berlusconi
Ruby, unga stúlkan frá Marokkó, sem er höfuðpersónan í málaferlum gegn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítalíu, og félögum hans fyrir að hafa greitt fyrir kynlíf með henni sagði fyrir rétti í Mílanó föstudaginn 24. maí að hún hefði búið til sögur um svæsnar kvöldskemmtanir með „Cavali...
Kýpur sakar þríeykið um rangfærslur í skýrslu um peningaþvætti
Kýpversk stjórnvöld saka þríeykið, ESB/AGS/SE um að rangfæra upplýsngar um peingaþvætti í bönkum á Kýpur í nýrri skýrslu, sem sagt hefur verið frá hér á Evrópuvaktinni. Þau segja að ályktanir, sem séu dregnar í skýrslunni séu tilefnislausar.
Barack Obama Bandaríkjaforseti kynnti nýja stefnu í stríðinu gegn hryðjuverkum í ræðu sem hann flutti í National Defense University í Washington fimmtudaginm 23. maí. Þetta stríð gæti ekki staðið „að eilífu“, því yrði að ljúka en baráttan gegn hryðjuverkamönnum að halda áfram. Stefnan hefur verið...