Miðvikudagurinn 19. júní 2013

Grikkland: Bréf Samaras leysir málið


25. nóvember 2011 klukkan 06:59
Lukas Papademos

Lucas Papademos, forsætisráðherra Grikklands, segir að bréfið, sem Antonis Samaras undirritaði og sendi í fyrradag til ESB/AGS/Seðlabanka Evrópu muni duga til þess að Grikkir fái útborgaðan næsta áfanga neyðarlánsins hinn 5. desember n.k., sem nemur 8 milljörðum evra. Önnur bréf grískra stjórnmálamanna og stofnana með staðfestingu á því sama og bréf Samaras fjallaði um, þ.e. samþykkt á skilmálum, sem Grikkjum hafa verið settir þurfa að vera tilbúin n.k. þriðjudag að sögn ekathimerini í morgun.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Harald Benediktsson Pistill

ESB-aðlögun: Virka peningarnir?

Eitt af því sem fylgdi umsókn Íslands um aðlögun að ESB, var að hér mætti ástunda flest það sem mögulegt væri til að auka stuðning við aðild. Athyglisvert er að íslensk stjórnvöld óskuðu sérstaklega eftir aðstoð við að sannfæra landsbúa um ágæti aðildar. Sem segir að stjórnvöld höfðu ekki trú á að þau „tækifæri“ sem fælust í aðild dygðu til að sannfæra landsmenn.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Bretland: Æðstu stjórnendur banka eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og tekjumissi skv. tillögum banka­nefndar

Nefnd, sem fjallar um nýtt regluverk fyrir banka í kjölfar fjármálakreppunnar og starfar í tengslum við brezka þingið leggur til að æðstu stjórnendur banka skuli eiga yfir höfði sér fangelsisdóma og missi milljóna punda í bónus­greiðslum ef þeir eigi þátt í falli banka í framtíðinni. Nefndin er þverpólitísk og í henni sitja bæði þingmenn og aðrir.

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, ræðir stöðu Íslendinga í sam­félagi þjóðanna í hátíðarræðu

Einar K. Guðfinnsson, forseti alþingis, flutti þjóðhátíðarræðu mánudaginn 17. júni í Búðardal. Hann vék meðal annars að stöðu Íslands og Íslendinga í sam­félagi þjóðanna og sagði: „Svo sannarlega erum við Evrópu­þjóð en það þýðir ekki að við viljum verða Evrópu­sambandsþjóð.“ Hér birtist kafli úr ræðu...

Viðskipta­viðræður ESB og BNA: Harka hlaupin í deilur milli Barrosos og Hollandes vegna fyrirvara um menningarmál

José Manuel Barroso, forseti framkvæmda­stjórnar ESB, sætir harðri gagnrýni franskra stjórnvalda vegna ummæla í viðtali við dagblaðið The Internartional Herald Tribune (IHT) sem birtist mánudaginn 17. júní þar sem hann segir það „afturhaldssemi“ að Frakkar vilji halda hljóð- og myndframleiðslu utan ...

Tvíhliða viðskipta­viðræður ESB og BNA formlega hafnar

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, kynnti mánudaginn 17. júní fyrir fund G8 ríkjanna á Norður-Írlandi áform um „stærsta tvíhliða viðskiptasaming í sögunni“ milli ESB og Bandaríkjanna. Barack Obama Bandaríkja­forseti sagði að fyrsta viðræðulota vegna samninganna yrði í Washington í júlí. Stef...

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS