Miðvikudagurinn 14. apríl 2021

Svört hagvaxta­rspá Seðlabanka Eistlands - aðeins 1,9% vexti spáð árið 2012


15. desember 2011 klukkan 15:32

Seðlabanki Eistlands en Eistland gerðist aðili að evru-samstarfinu 1. janúar 2011 hefur lækkað spá sína um hagvöxt á árinu 2012 um helming í 1,9% og vísar þar til áhrifanna af skuldavandanum á evru-svæðinu.

Þetta kemur fram í frétt AFP-fréttastofunnar 14. desember.

„Hvatinn til vaxtar er að minnka og óvissa í ytra umhverfi eykst. Hagvöxtur dregst hratt saman vegna verri ytri aðstæðna,“ segir í tilkynningu bankans. „Versni ytri aðstæður enn er ekki unnt að útiloka samdrátt.“

Bankinn bendir á skuldavandinn og útbreiðsla hans hafi spillt mjög fyrir efnahagsþróun í Evrópu og annars staðar í heiminum. Þá ríki pólitísk óvissa í ýmsum evru-ríkjum auk vantrúar á mörkuðum.

Til þessa hefur bankinn spáð 4,2% hagvexti árið 2012. Um leið og hann lækkaði spá sína fyrir næsta ár hækkaði hann hagvaxtartölur fyrir árið 2011 í 7,9% frá 6,3% eins og þær höfðu verið áður.

Mið-hægri ríkisstjórn Eistlands nýtur viðurkenningar fyrir aðhaldssama stefnu í ríkisfjármálum. Stjórnvöld halda því fram að þrátt fyrir kreppuna á evru-svæðinu sé efnahag Eistlands betur borgið innan evru-svæðisins en utan.

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Bólgan vex en hjaðnar samt

Nú mæla hagvísar okkur það að atvinnuleysi fari vaxandi og jafnframt að verðbólgan færist í aukana. Það er rétt að atvinnuleysið er að aukast og er það í takt við aðra hagvísa um minnkandi einkaneyslu, slaka í fjárfestingum og fleira. Það er hinsvegar rangt að verðbólgan sé að vaxa.

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS