Herman Van Rompuy, forseti leiðtogaráðs ESB og José Manuel Barroso. forseti framkvæmdastjórnar ESB hafa fullvissað dönsk stjórnvöld um að fyrirvarar Dana gegn upptöku evru raskist ekki þótt Danir gerist aðilar að evru-samningnum. Dönsk stjórnvöld verði ekki krafin um að fylgja ákvæðum samningsins nema Danir taki upp evru.
Þessar yfirlýsingar duga ekki til að skapa frið um málið innan SF, sósíalíska vinstriflokksins, sem á aðild að dönsku ríkisstjórninni og utanríkisráðherrann í henni.
Jens Joel, sem fer með ESB-mál fyrir hönd þingflokks jafnaðarmanna, flokks danska forsætisráðherrans, útilokar ekki þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild Dana að samningnum þrátt fyrir yfirlýsingar forráðamanna ESB. Hann segir að Van Rompuy og Barroso hafi lag sitt af mörkum til þeirrar raðmyndar sem sé að verða til úr yfirlýsingum manna um evru-samninginn. Þar þurfi að líta til stjórnmálalegra, lögfræðilegra og efnahagslegra þátta.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.