Breska utanríkisráðuneytið vinnur að gerð áætlunar um hvernig unnt verði að flytja hina mörgu Breta sem búa í Portúgal og á Spáni til Bretlands ef fjármálakerfi landanna tveggja hrynur. Talið er að um ein milljón Breta búi í löndunum tveimur en skuldakreppan á evru-svæðinu hefur leikið þau mjög grátt.
Þetta kemur fram í The Sunday Times sunnudaginn 18. desember sem vekur athygli á því að matsfyrirtækið Fitch gaf í síðustu viku til kynna að ef til mundi lánshæfiseinkunn Spánar verða lækkuð.
Áætlanir breskra stjórnvalda gera ráð fyrir því að leigðar verði flugvélar, langferðabílar og skip til að flytja fólk af meginlandinu til Bretlands.
„Við könnum hvernig best yrði staðið að því að flytja fólk á brott ef bankar á Spáni og í Portúgal hryndu. Versta sviðmyndin gerir ráð fyrir því að þúsundir Breta yrðu strandaglópar í flugstöðvum á Spáni og í Portúgal fé- og bjargarlausir“ segir embættismaður við The Sunday Times.
Embættismaðurinn segir að bresk stjórnvöld hafi gripið til svipaðra aðgerða þegar stríð varð milli Hizbollah og Ísraela í Líbanon árið 2006.
Frá því var sagt í breskum fjölmiðlum í nóvember að utanríkisráðuneytið hefði falið sendiráðum og ræðismönnum Bretlands að gera viðbragðsáætlanir kæmi til átaka og félagslegrar upplausnar í þeim löndum þar skuldakreppan er verst.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.