Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti hefur gefið ráðherrum fyrirmæli um að taka sem styst leyfi frá störfum um jól og áramót að sögn Le Figaro.
„Þið eigið að fara sem minnst frá og halda ykkur eins nálægt [París] eins og kostur er og vera 100% til taks um hátíðarnar,“ segir blaðið að Sarkozy hafi sagt á ríkisstjórnarfundi miðvikudaginn 21. desember.
Í fjölmiðlum kemur fram að ráðherrar virðist hlýða þessum fyrirmælum og skjótist aðeins frá höfuðborginni til að líta inn í heimili sín úti í kjördæmunum. Þar sem jól og áramót eru um helgi verður ekki um neina almenna frídaga að ræða í Frakklandi að þessu sinni.
Forsetinn verður sjálfur nálægt París í opinberum bústað sínum La Lanterne í Versala-úthverfinu.
Um síðustu jól og áramót þáði Michéle Alliot-Marie, utanríkisráðherra Frakka, boð með foreldrum sínum í Túnis sem leiddi til þess að hún sagði af sér. Þá fór François Fillon forsætisráðherra til Egyptalands og naut gistivináttu Mubaraks forseta. Varð það forsætisráðherranum næstum að falli. Þóttu ferðir beggja gagnrýnisverðar þar sem þær voru í skjóli fallvaltra einræðisherra sem síðar hröktust frá völdum.
Nicolas Sarkozy nýtur nú minna fylgis samkvæmt skoðanakönnunum en sósíalistinn François Hollande keppinautur hans um forsetaembættið í kosningunum í apríl. Sarkozy vill því forðast allar neyðarlega uppákomur vegna ráðherra sinna í jólaleyfinu að þessu sinni og þykir öruggast að skipa þeim að halda sér heima við og í höfuðborginni.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.