Tugir þúsunda manna taka þátt í mótmælum í Sakharov-breiðgötu í Moskvu laugardaginn 24. desember, aðfangadag, gegn Valdímír Pútín og stjórn hans vegna ásakana um að svindlað hafi verið í þágu flokks hans í þingkosningum 4. desember sl.
BBC segir að aðgerðirnar séu um allt Rússland og hafi að þessu sinni hafist í Vladivostok, hafnarborg við Kyrrahaf.
Talið er að 50.000 manns komi saman í Moskvu nokkra kílómetra frá Kremlarkastala.
Fyrr í vikunni kynnti Dmitri Medvedev, forseti Rússlands, umbótaaðgerðir að vegum stjórnvalda en þær féllu í grýttan jarðveg meðal mótmælenda sem The New York Times segir að styðjist við samskiptamiðla á netinu á sama hátt og gert var í arabalöndum fyrr á árinu þar sem almenningur, einkum ungt fólk leiddi andstöðu við yfirvöld. Í Rússlandi er þess krafist að þingkosningarnar verði endurteknar.
Í BBC er sagt frá því að borgarstjórn Moskvu bjóði mótmælendum te og einfalda heita rétti í kuldanum en nokkurra gráðu frost er í borginni.
Rússneskir fjölmiðlar segja að um 40 langferðabílar með óeirðalögreglumenn séu við breiðstrætið. AFP-fréttastofan hefur eftir embættismanni að 50.000 manns rúmist í strætinu.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.