Beðið var fyrir hertoganum af Edinborg, Filippusi (90 ára), prinsi, drottningarmanni í Bretlandi, við messu að morgni jóladags í Sandringham-setri konungsfjölskyldunnar í Norfolk. Hertoginn er í Papworth-sjúkrahúsi í Cambridgeskíri eftir hjartaþræðingu að kvöldi Þorláksmessu.
Peter Hunt, hirðfréttaritari BBC, segir allt benda til þess að prinsinn vilji sem fyrst komast af sjúkrahúsinu, honum „líði vel“.
Um 3.000 manns komu saman við kirkju Maríu meyjar í Sandringham að morgni jóladags til að fylgjast með ferðum konungsfjölskyldunnar. Tók fólk að hópast saman fyrir klukkan 07.00. Að lokinni athöfninni gekk hið konungborna fólk meðal þeirra sem stóðu við kirkjuna, þáði blóm og skiptist á jólakveðjum.
Talsmaður Buckingham hallar sagði að við athöfnina hefði hertogaynjan af Cambridge borið hatt sem Jane Corbett saumaði og klæðst kápu bresks klæðskera án þess að nafns hans væri getið. Angela Kelly gerði hatt drottningar en Karl Ludwig kápu hennar.
Drottningin heimsótti eiginmann sinn í sjúkrahúsinu á aðfangadag. Með henni voru Játvarður og Andrés synir hennar og dóttirin Anna. Dvöldust þau 45 mínútur við sjúkrabeðinn. John Cunningham prófessor, læknir drottningar, tók á móti þeim þegar þau stigu úr þyrlu sem flutti þau til sjúkrahússins frá Sandringham. Eftir að þau yfirgáfu sjúkrahúsið komu Karl, prins af Wales, og hertogaynjan af Cornwall akandi frá heimili sínu, Highgrove í Gloucestershire, til sjúkrahússins.
Nicholas Witchell, hirðfréttari BBC, segir að skyndileg heimsókn drottingar til eiginmanns síns gefi til kynna að „raunverulegur ótti“ hafi sótt að konungsfjölskyldunni en hann sé nú að baki.
Þyrla flutti Filippus prins til sjúkrahússins eftir að hann hafði fundið fyrir verkjum fyrir brjósti. Enginn úr konungsfjölskyldunni fylgdi honum í þyrlunni.
Papworth-sjúkrahúsið er nálægt Huntingdon í Cambridgeskíri. Það er stærsta sjúkrahús á Bretlandi sem sérhæfir sig í hjarta- og lungnasjúkdómum. Þar eru einnig gerðar flestar hjarta- og lungnaígræðslur á Bretlandseyjum. Rúmlega 22.000 sjúklingar eru lagðir þar inn á ári og göngudeildin sinnir um 53.400 sjúklingum árlega.
Filippus prins ætlaði að stjórna veiðum í Sandringham annan dag jóla. Hann kom til setursins mánudaginn 19. desember. Í nóvember fagnaði prinsinn 64 ára brúðkaupsafmæli sínu og Elísabetar drottningar. Hann var síðast lagður inn á sjúkrahús í apríl 2008 vegna ígerðar í brjósti, þá heimsótti drottningin hann ekki á sjúkrahúsið þar sem hann lá í þrjá daga. Þegar prinsinn varð 90 í ára í júní lét hann orð falla um að hann mundi fara sér hægar. Hann sagði síðan af sér sem verndari fjölmargra stofnana og samtaka.
Penny Juror, konunglegur ævisöguritari, segir við BBC að Filippus prins sé við góða heilsu miðað við aldur.
„Hann er einstaklega hress. Hann er iðinn við líkamsæfingar, hann vinnur óhemjumikið. Hann er almennt vel á sig kominn,“ sagði hún.
Bretadrottning ávarpar þjóðina á jóladag. Ræðan var tekin upp 9. desember.
Þáttaskil urðu í samskiptum ríkisstjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðustjóra stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...
Kolbeinn Árnason, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópuskýrslum, frá Hagfræðistofnun HÍ og Alþjóðamálastofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...
Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?
Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.
Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu
Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópuþingsins þess efnis að Evrópusambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.
Holland: Útgönguspár benda til að Frelsisflokkur Wilders tapi fylgi
Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsisflokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópuþingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópuþinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.