Miðvikudagurinn 20. janúar 2021

Kirkjuferð lækkar blóðþrýsting - rannsóknir í Bandaríkjunum og Noregi


26. desember 2011 klukkan 15:00

Kirkjuferð um jólin og endranær lífgar ekki aðeins sálartetrið heldur bætir hún jafnframt líkamlega heilsu. Vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að sæki menn messu lækki í þeim blóðþrýstingur og því meira eftir því sem þeir eru kirkjuræknari.

Rannsóknir í Bandaríkjunum höfðu bent til þessa en þar sem um 40% Bandaríkjamanna sækja reglulega kirkju var þetta talin tilviljun. Í Noregi fóru aðeins 4% þeirra 120.000 sem rannsakaðir voru að jafnaði í kirkju og þar kom það mönnum því að sjá að blóðþrýstingur hinna kirkjuræknu var lægri en hinna sem létu hjá líða að sækja messu.

Norska rannsóknin þykir staðfesta að tengsl séu á milli kirkjusóknar og blóðþrýstings þótt vísindamenn vilji ekki slá því endanlega föstu án frekari rannsókna.

Niðurstaða rannsóknanna var birt í tímaritinu International Journal of Psychiatry in Medicine.

Heimild: mailonline

 
Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Pistill

Umsóknarferli í andaslitrum - straumhvörf hafa orðið í afstöðu til ESB-viðræðna - réttur þjóðar­innar tryggður

Þáttaskil urðu í samskiptum ríkis­stjórnar Íslands og ESB fimmtudaginn 12. mars þegar Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis­ráðherra aftenti formanni ráðherraráðs ESB og viðræðu­stjóra stækkunarmála í framkvæmda­stjórn ESB bréf. Textinn sem gildir gagnvart ESB er á ensku. Þar segir: „The Government of...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

Kolbeinn Árnason: Óþarfi að ræða frekar við ESB vegna afstöðu Brusselmanna í sjávar­útvegsmálum - tvær Evrópu­skýrslur styðja sjónarmið LÍÚ

Kolbeinn Árnason, framkvæmda­stjóri Lands­sambands íslenskra útvegs­manna (LÍÚ) segir að í tveimur nýlegum Evrópu­skýrslum, frá Hagfræði­stofnun HÍ og Alþjóða­mála­stofnun HÍ, komi fram rök sem styðji þá afstöðu LÍÚ að Ísland eigi að standa utan ESB. Þá segir hann óþarfa að ganga lengra í viðræðum við ES...

Norðurslóðir: Risastórir öskuhaugar fastir í ís?

Rannsóknir benda til að hlýnun jarðar og sú bráðnun hafíss, sem af henni leiðir geti losað um 1 trilljón úrgangshluta úr plasti, sem hafi verið hent í sjó og sitji nú fastir í ísbreiðum á Norðurslóðum. Þetta segja rannsakendur að geti gerzt á einum áratug. Meðal þess sem rannsóknir hafa leitt í ljós er að slíkir öskuhaugar séu að myndast á Barentshafi.

Þýzkaland: Merkel segir ESB ekki bandalag um félagslega þjónustu

Angela Merkel liggur nú undir harðri gagnrýni fyrir ummæli, sem hún lét falla, nú nokkrum dögum fyrir kosningar til Evrópu­þingsins þess efnis að Evrópu­sambandið væri ekki „socialunion“ eða bandalag um félagslega þjónustu.

Holland: Útgönguspár benda til að Frelsis­flokkur Wilders tapi fylgi

Útgönguspár, sem birtar voru í Hollandi í gærkvöldi benda til að Frelsis­flokkur Geert Wilders muni tapa fylgi í kosningunum til Evrópu­þingsins sem hófust í gærmorgun og að þingmönnumhans á Evrópu­þinginu fækki um tvo en þeir hafa verið fimm. Þetta gengur þvert á spár um uppgang flokka lengst til hægri í þeim kosningum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS