Miðvikudagurinn 22. febrúar 2012

Portúgal getur ekki staðið undir skuldum sínum


27. janúar 2012 klukkan 08:40

Rannsóknarstofnun í Þýzkalandi, Kiel Institute, hefur lýst þeirri skoðun í nýrri skýrslu, sem sagt er frá í Daily Telegraph í dag, að Portúgal geti ekki staðið undir skuldum sínum og að þörf verði á annarri björgunaraðgerð til viðbótar við hina fyrri.

Kiel Institute segir, að til þess að standa undir skuldum sínum verði Portúgal að skila afgangi af fjárlögum hvers árs, sem nemi 11% af vergri landsframleiðslu. Það gangi ekki upp. Þegar niðurstaða sé komin í málefnum Grikklands komi röðin að Portúgal. Í gær var ávöxtunarkrafan á fimm ára portúgölsk skuldabréf 18,9%. Opinberar skuldir Portúgala nema nú 118% af vergri landsframleiðslu en heildarskuldir Portúgala 360% af vlf.

 
Senda með tölvupósti  Senda á Facebook  Senda á Twitter  Vista sem pdf  Prenta

 
Eftir Rögnvald Hannesson Pistill

Evrónían

*Örlög evrunnar eru svo undarleg að þau mættu eignast eigið orð – evronía*. Mitterrand, þáverandi forseti Frakklands setti á sínum tíma sem skilyrði fyrir endursameiningu Þýskalands að Þjóðverjar köstuðu þýska markinu og tækju um sameiginlega evrópska mynt. Þjóðverjar höfðu lítinn áhuga á þessu;...

 
Mest lesið
Fleiri fréttir

ESB-dómstóllnum falið að segja álit sitt á ACTA-samningnum

ESB-dómstóllinn verður krafinn álits á því hvort ACTA-samningurinn um vernd höfundar- og hugverkaréttinda standist lög ESB. Samningurinn hefur sætt gagnrýni fyrir að takmarka frelsi í netheimum. Karel De Gucht, viðskiptamála­stjóri ESB, segir að dómararnir verði beðnir um að láta í ljós álit á því h...

Bylting í þjónustu leigubíla veldur uppnámi í Þýskalandi

myTaxi er nýtt forrit í Þýskalandi sem gerir leigubílastöðvar óþarfar fyrir snjallsíma­eigendur. Þeir geta nú pantað leigubíl án þess að hringja í stöð. Forritið notar GPS til að senda pöntun á nokkrum sekúndum viðskiptavinarins til næsta lausa bíl­stjóra. Þegar bíl­stjórinn hefur svarað kallinu getur viðskiptavinurinn fylgst með ferð hans á síma sínum.

Danir greiða ekki þjóðar­atkvæði um ríkisfjármálasamning ESB

Danska dómsmála­ráðuneytið hefur úrskurðað að ekki skuli borið undir þjóðar­atkvæði hvort Danir gerist aðilar að ríkisfjármálasamningi ESB-ríkjanna.

Kristinn Hrafnsson boðar uppljóstranir WikiLeaks um Carl Bildt - sænsk blöð tala um ófrægingarherferð til bjargar Assange

Sænska götublaðið Expressen segir að WikiLeaks undirbúi ófrægingarherferð á hendur Svíum til að stöðva framsal Julian Assange, forgöngumanns WikiLeaks, frá Svíþjóð til Bandaríkjanna. Fyrir WikiLeaks vaki meðal annars að birta skjöl sem sýni að Carl Bildt, utanríkis­áðherra Svía, hafi á ólöglegan hátt miðlað upplýsingum til Bandaríkjanna á áttunda áratugnum.

 
 
    Um Evrópuvaktina     RSS